fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Eyjan

Kaldhæðinn Kári svarar Guðmundi Andra – í bréfi til bróður hans

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 29. apríl 2019 14:55

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar,  skrifar grein á vef Kjarnans í dag, sem er svargrein við grein Guðmundar Andra Thorssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, vegna þriðja orkupakkans. Sú grein var svargrein við grein Kára í Fréttablaðinu.

Grein Kára er þó stíluð á Örnólf Thorsson, sem er bróðir Guðmundar, því Kára fannst réttara að:

„…senda orð mín til þín og biðja þig að vefja þau inn í bóm­ull og flytja þau þannig til hans. Guð­mundur Andri er nefni­lega í Sam­fylk­ing­unni og mér skilst að það sé ekki rétt­látt að leggja meira á mann en það og alls ekki bréf af þess­ari gerð.“

Sæstrengur leiði til hækkunar orkuverðs

Kári hafði amast við í fyrri grein sinni að eina markmið Landsvirkjunar væri að hámarka verðið á rafmagni og lagning sæstrengs væri ein leið til þess. Guðmundur Andri sagði það ekki vera áhyggjuefni, heldur fagnaði því að Landsvirkjun fengi arð af slíkri orkusölu, í stað mengandi iðnaðar eins og álbræðslna og kísilverksmiðja. Þess skal getið að engin áform eru um slíkan sæstreng samkvæmt utanríkisráðherra og ef svo færi, yrði Alþingi að samþykkja þá aðgerð sérstaklega, samkvæmt þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um innleiðingu þriðja orkupakkans.

Kári telur það þó ganga gegn almannahagsmunum ef orkan yrði seld um sæstreng:

„a) Ef við seldum raf­magn til Evr­ópu í gegnum  sæ­streng yrðum við sam­kvæmt reglum EES að verð­leggja það eins við báða enda. Þar af leið­andi myndi verð á raf­magni hækka mikið á Íslandi og taka frá íslenskum atvinnu­vegum það for­skot sem felst í ódýrum aðgangi að vist­vænni orku.

b) Ég held að það eigi að vera okkur kapps­mál að nýta raf­ork­una okkar hér heima til þess að búa til vörur og rækta jurtir og geyma gögn. Við eigum ekki að sætta okkur við að láta aðra hirða virð­is­auk­ann sem í því felst.

c) Það er nokkuð víst að innan skamms muni krafan um að minnka mengun við alls konar fram­leiðslu gera það að verkum að það þætti nokkur fengur að  því að fá að sinna henni á landi þar sem vist­væna orkan er aðgengi­legri en í flestum öðrum lönd­um. Þess vegna eigum við ekki að veita henni úr landi heldur nýta hana sem okkar sér­stæði til þess að búa til verð­mæti hér, ekki ann­ars stað­ar. d. Það er lík­legt að sæstrengur myndi kalla á enn meiri virkj­ana­vafstur og þykir mörgum nóg vegið að íslenskri nátt­úru með því sem komið er.“

Klaustursmálið

Kári skilgreinir rökræðu sína og Guðmundar Andra sem fjölskylduerjur, sem einkennist af pirringi og nöldri, frekar en raunverulegum ágreiningi.

Guðmundur Andri hafði sagt í svargrein sinni að framgangur Klaustursþingmannanna gæfi alls ekki rétta mynd af störfum þingheims alls og ekki væri unnt að draga aðrar ályktanir en þær af Klaustursmálinu, en að áfengi gerði hvern mann að bjána sem þess neyti í óhófi.

Um þetta segir Kári:

„Ekki ætla ég að deila við bróður þinn um þá ályktun að áfengi neytt í óhófi geri menn að bján­um, en ég er honum hins vegar  ósam­mála þegar hann segir að það megi ekki draga af því víð­tæk­ari álykt­an­ir. Til dæmis er sá bjána­skapur sem fimm­menn­ing­arnir hafa framið í tengslum við Klaust­ur­málið eftir að rann af þeim sínu verri en skít­mælgin undir áhrif­um. Þeir hafa veist að Báru þeirri sem tók upp sam­ræð­urnar og gefið í skyn að hún hafi verið útsend­ari illra afla og hafi jafn­vel fengið fé fyrir vik­ið. Hvaða máli skiptir það? Þeir sögðu það sem þeir sögðu og hvort það var tekið upp eða af hverjum breytir þar engu. Það er sem sagt ýmis­legt sem bendir til þess að þessir ágætu þing­menn séu tölu­verðir bjánar af sjálfum sér og þurfi  ekki endi­lega hjálp áfengis til.“

Ykkar megin í fjölskyldunni

Að lokum segir Kári frá því að langalangafi sinn og þeirra Thorsson bræðra, hafi verið ansi mikill glanni og ekki eins háttprúður og stilltur eins og Kári:

„Ég reikna með því að óhemjan í hon­um, sem ég held að hafi átt rætur í pirr­ingi, hafi öll endað ykkar megin í fjöl­skyld­unni.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Samfélag til að græða á

Sigmundur Ernir skrifar: Samfélag til að græða á