Stéttarfélag Þingeyinga, Framsýn, afturkallaði samningsumboð sitt til Starfsgreinasambandsins í gærkvöldi. Tilgreint var að félagið ætti frekar samleið með VR, Eflingu, Verkalýðsfélags Akraness og Verkalýðsfélags Grindavíkur og að einhugur ríkti um ákvörðunina.
Þá sagði Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar, við mbl.is að þetta væru einu félögin sem hafi alfarið hafnað vinnutímabreytingum sem lagðar voru fram af Samtökum atvinnulífsins:
„Því miður er það þannig að innan hreyfingarinnar hafa verið einstaklingar sem hafa viljað skoða þetta, en maður áttar sig ekki á því. Þetta er bara bullandi kjaraskerðing fyrir fólk að skera niður yfirvinnutíma og lengja dagvinnutíma.“
Samninganefnd Starfsgreinasambandsins þykir tilefni til að gefa frá sér eftirfarandi yfirlýsingu vegna þungra saka sem á það er borið:
„Í tilefni af fréttum fjölmiðla þess efnis að Framsýn stéttarfélag hefur ákveðið að afturkalla samningsumboð sitt frá Starfsgreinasambandinu vegna tveggja kjarasamninga vill samninganefnd Starfsgreinasambandsins koma eftirfarandi staðreyndum á framfæri: Framsýn stéttarfélag hefur ákveðið að afturkalla samningsumboð sitt frá Starfsgreinasambandinu og er það í samræmi við forræði einstakra félaga á sínum málum. Það er miður að í tengslum við þessa samþykkt þurfi að bera félaga sína þungum sökum. Samninganefnd Starfgreinasambandsins mun aldrei taka þátt í því að semja um að rýra kjör okkar fólks, hvort sem það lítur að vinnutíma, álagsgreiðslna eða annara þátta.
Í viðræðum við Samtök atvinnulífsins hefur þessi afstaða komið fram með mjög sterkum og afdráttarlausum hætti og samninganefndarmönnum á að vera það algerlega ljóst. Það má minna á að Starfsgreinasambandið sleit viðræðum við SA vegna þessara þátta. Samninganefnd Starfsgreinasambandsins mun ekki standa í skeytasendingum við félaga sína í fjölmiðlum. Verkefni okkar er að ná samningum um bætt kjör okkar fólks, við einbeittum okkur að því í samhljómi við félaga okkar í Eflingu, Verkalýðsfélagi Akraness og Grindavíkur.“
Undir yfirlýsinguna skrifar Flosi Eiríksson, framkvæmdastjóri SGS.