Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar sem á sæti í umhverfis- og samgöngunefnd, er „gríðarlega“ ósátt við niðurstöður fundarins í morgun, þar sem Bergþór Ólason steig til hliðar og Jón Gunnarsson tekur við tímabundið. Tillagan um að hún yrði formaður var felld.
Hún segist þó ekki ósátt við formennskusætið, heldur að stjórnarflokkarnir séu að nýta sér þær „fordæmalausu“ aðstæður sem upp hafa komið í kjölfar málsins, líkt og Fréttablaðið hefur eftir henni:
„Það er að myndast þessi nýi meirihluti, sem eru ríkisstjórnarflokkarnir, Miðflokkur og þingmaðurinn sem situr utan flokka. Stjórnarflokkarnir eru einfaldlega að ganga bak orða sinna um formennskuskiptin og Sjálfstæðisflokkurinn hrifsar nú til sín formennsku í fjórðu nefndinni. Það er með miklum ólíkindum, án þess að ég ætli að skipta mér af því hvernig hinum stjórnarflokkunum tveimur líður í þessu samstarfi, að þeir hafi aðeins sitt hvora formennskuna á móti þessum fjórum.“
Minnihlutinn í nefndinni lagði til að Hanna Katrín tæki við formennsku í nefndinni, en sú tillaga var felld af meirihlutanum. Einnig var felld tillaga meirihlutans að Hanna Katrín yrði fyrsti eða annar varaformaður.
Tillaga fráfarandi formanns, Bergþórs Ólasonar, um að Jón Gunnarsson, Sjálfstæðisflokki, yrði formaður og Ari Trausti Guðmundsson, VG, varaformaður, var hinsvegar samþykkt.
Sjálfstæðisflokkurinn fer því með nefndarformennsku í fjórum fastanefndum þingsins af átta.
Sjá einnig: Björn Leví ósáttur:„Miðflokkurinn á ekki þetta sæti“
Hanna segir í stöðuuppfærslu á Facebook, á kjarnyrtri engilsaxnesku, að málið allt sé með ólíkindum og vísar í frétt mbl.is þar sem Bergþór Ólason sagði að honum litist illa á formennsku „til vinstri“:
„Nú er heimurinn kominn á hvolf. Þingmaður, sem í formennskutíð sinni styður tillögur Sjálfstæðisflokksins um fordæmalitlar skattahækkanir á íbúa Suðvesturhornsins vill ekki formanninn sem mótmælir þessum skattahækkunum – af því að hún er svo vinstrisinnuð. „You can’t make this shit up“ svo ég leyfi mér að sletta.“