Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata, var upp á náð og miskunn ættingja sinna komin fyrir jólin eftir að mygla uppgötvaðist í leiguíbúð hennar, en hún hefur verið á leigumarkaði í nokkur ár. Hefur myglan orsakað veikindi hjá dóttur hennar og ákvað Halldóra því að flytja út. Fréttablaðið greinir frá.
„Íbúðin hafði nýlega verið máluð og því leiddi maður ekki hugann að því að mygla gæti orsakað veikindin. Það reyndist þó raunin eftir að sérfræðingar frá Eflu komu og tóku íbúðina út. Það er ekki léttvæg ákvörðun að gera slíkt rétt fyrir jól en heilsa fjölskyldumeðlima skiptir auðvitað öllu máli,“
segir Halldóra við Fréttablaðið.
Halldóra vill að réttindi leigutaka verði skoðuð betur í þessu ljósi þar sem leigusalinn sé í yfirburðastöðu í slíkum tilvikum:
„Við erum með gildan leigusamning og því erum við upp á náð og miskunn leigusala hvort við fáum að losna fyrr undan honum. Það er ekki nema í mjög ýktum dæmum, sem leigjendur öðlast einhver réttindi í slíkum aðstæðum og ég tel að löggjafinn þurfi að skoða þessa viðkvæmu stöðu betur. Bara þessi vandræði mín hafa gert það að verkum að maður hefur heyrt margar enn verri sögur. Það þarf að skoða réttarstöðu leigjenda í slíkum dæmum en einnig fyrirbyggjandi aðgerðir vegna myglu. Það er greinilegt að við erum að gera eitthvað vitlaust í uppbyggingu íbúða þegar slík vandamál eru að koma upp.“
Halldóra á sem betur fer góða að og hefur verið hjá vinum og ættingjum undanfarnar vikur. Hún hefur þó fengið bót meina sinna í bili:
„Við fundum íbúð hjá yndislegu fólki sem þau ætluðu að leigja okkur frá og með 1. janúar. Þegar þau heyrðu af vandræðum okkar þá leyfðu þau okkur að flytja inn fyrir jól, jafnvel þó að þau væru ekki flutt alveg út. Það er æðislegt að finna fyrir slíkum náungakærleik,“
segir Halldóra.