fbpx
Sunnudagur 19.janúar 2025
Eyjan

Óvenjuleg jólakveðja Agnesar – „Var spurð að því um daginn hvort það færi ekki í taugarnar á mér”

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 20. desember 2019 12:36

Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, sendir frá sér óvenjulega jólakveðju í ár, sem birtist í myndbandi á samfélagsmiðlum. Þar svarar hún einnig einni af mikilvægustu spurningu kristindómsins.

Í byrjun myndbandsins hljómar aðventulag Baggalúts frá árinu 2005, Sagan af Jesúsi, við óviðjafnanlegan texta Braga Valdimars Skúlasonar, en lagið er þýskt að uppruna og heitir Keeping The Dream Alive með hljómsveitinni Münchener freiheit.

Jesús eða Sússi ?

Í kveðju sinni segir Agnes:

„Ég var spurð að því um daginn hvort það færi ekki í taugarnar á mér að Jesús væri kallaður Sússi í vinsælu jólalagi Baggalúts.“

Hún svarar því síðan til að nafnið sjálft sé ekki heilagt:

„Ég svaraði því til að mér finndist lagið nokkuð gott, þess utan leiddi spurningin að enn mikilvægari spurningu, hvað er það sem skiptir máli þegar kemur að kjarna trúarinnar? Hvað er það í boðskap Jesú Krists sem stendur óbifað hvað sem mannanöfnun og viðurnefnum líður ? Því er til að svara og hefur aldrei verið mikilvægara; kærleikur, friður og andleg fullnægja hvers og eins.

Nafnið er hvorki heilagt né fylgir því hjálpræði. Emmanúel, Jesús, eða Sússi  ef nafnið leiðir okkur að kjarna trúarinnar, og minnir okkur á anda jólanna, þá sef ég róleg. Baggalútur heldur áfram að syngja og við leggjum rækt við það sem öllu máli skiptir, okkar andlegu velferð. Mín fyrirbæn til þín er að þú eigir gleði og friðarjól með þeim sem þú elskar mest. Gleðileg jól.”

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Tímamóta-Dagur þakkar fyrir sig – „Og angurværi gaurinn – ég – til hægri, þakkar fyrir sig!“

Tímamóta-Dagur þakkar fyrir sig – „Og angurværi gaurinn – ég – til hægri, þakkar fyrir sig!“
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Vilhjálmur Birgisson skrifar: Mikilvægi faglegrar erlendrar úttektar á gjaldmiðlamálum

Vilhjálmur Birgisson skrifar: Mikilvægi faglegrar erlendrar úttektar á gjaldmiðlamálum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fyrrum þingmaður segir okkur ekki ráða við þetta einfalda verkefni

Fyrrum þingmaður segir okkur ekki ráða við þetta einfalda verkefni
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ásdís Rán útilokar ekki annað forsetaframboð

Ásdís Rán útilokar ekki annað forsetaframboð
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segir óvíst að Kristrúnu takist að halda Degi úti í horni til lengdar

Segir óvíst að Kristrúnu takist að halda Degi úti í horni til lengdar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Það má semja um aðildarskilmála að ESB – mörg dæmi sýna það og sanna

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Það má semja um aðildarskilmála að ESB – mörg dæmi sýna það og sanna
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Auðræðið eflist og lýðræðið linast

Sigmundur Ernir skrifar: Auðræðið eflist og lýðræðið linast
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Nýir leiðtogar munu spreyta sig fyrir næstu borgarstjórnarkosningar – alger uppstokkun í aðsigi

Orðið á götunni: Nýir leiðtogar munu spreyta sig fyrir næstu borgarstjórnarkosningar – alger uppstokkun í aðsigi