Alls barst 41 umsókn um starf útvarpsstjóra samkvæmt tilkynningu frá RÚV. Nöfnin eru ekki birt, samkvæmt nýrri stefnu RÚV um ógagnsæi.
Tilkynningin er eftirfarandi:
Starf útvarpsstjóra var auglýst laust til umsóknar 15. nóvember eftir að Magnús Geir Þórðarson sagði starfi sínu lausu, en hann var skipaður þjóðleikhússtjóri frá og með 1. janúar nk. Magnús Geir hafði gegnt stöðu útvarpsstjóra frá árinu 2014.
Upphaflegur umsóknarfrestur rann út 2. desember en ákveðið var að framlengja hann um viku eða til 9. desember. Alls barst 41 umsókn um starfið.
Stjórn RÚV ræður útvarpsstjóra. Á næstu vikum verður farið yfir umsóknir og hefur stjórn fengið ráðningafyrirtækið Capacent til að hafa umsjón með því verkefni. Stjórn RÚV stefnir að því að ganga frá ráðningu nýs útvarpsstjóra í lok janúar 2020.