fbpx
Laugardagur 22.febrúar 2025
Eyjan

Segir Samherjamálið kveikjuna að nýju karpi um kvótakerfið og útgerðarfyrirtæki „hafi áhyggjur“

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 27. nóvember 2019 14:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins, segir Samherjamálið hafa leyst úr læðingi nýjar umræður um tilvistarrétt kvótakerfisins, en almenn sátt hafi ríkt um það hingað til, svona að mestu leyti:

„Þess verður vart, að ein af afleiðum Samherjamálsins séu að nýjar umræður séu að hefjast um kvótakerfið, kosti þess og galla, ekki sízt í sjávarplássum. Inn í þær umræður blandast raunar nýr þáttur, sem snýr að starfsemi íslenzkra útgerðarfyrirtækja í öðrum löndum og samspili fiskverðs og fiskvinnslu á þeirra vegum í öðrum löndum. Þetta er athyglisvert í ljósi þess að eftir að auðlindagjald var tekið upp í sjávarútvegi hefur verið sæmileg sátt um kvótakerfið sem slíkt, þótt deilur hafi alltaf verið um upphæð auðlindagjalds.“

Styrmir segir hinsvegar að nú kunni útgerðarfyrirtækin að ókyrrast, þegar farið verður að skoða kvótakerfið nánar:

„En nú kann sem sagt að vera, að umræður um kvótakerfið séu að hefjast á ný og þess verður vart að útgerðarfyrirtæki hafi áhyggjur af framvindu mála á þeim vettvangi.“

Íslenska kvótakerfið hefur verið sagt það besta í heimi og því til staðfestingar er skemmst að minnast þess að Namibía leitaði til Íslands þegar skipuleggja átti fiskveiðistjórnunarkerfi þeirra frá grunni í kjölfar sjálfstæðis landsins. Stórfé var varið til þeirrar þróunarsamvinnu af hálfu Íslands, en Samherji hóf þar fiskveiðar nánast um leið og þeirri þróunarsamvinnu lauk.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Vilhjálmur Birgisson skrifar: Hrægammarnir í bankakerfinu – græðgi á kostnað almennings

Vilhjálmur Birgisson skrifar: Hrægammarnir í bankakerfinu – græðgi á kostnað almennings
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Hönnuð atburðarás og einkennileg framkoma Gylfa

Orðið á götunni: Hönnuð atburðarás og einkennileg framkoma Gylfa
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ragna hættir hjá Alþingi í sumar – Ráðin forstjóri Landsnets

Ragna hættir hjá Alþingi í sumar – Ráðin forstjóri Landsnets
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Hvernig verður umhorfs í Sjálfstæðisflokknum eftir landsfund? Ófriðarbál eða friður?

Orðið á götunni: Hvernig verður umhorfs í Sjálfstæðisflokknum eftir landsfund? Ófriðarbál eða friður?