„HVERNIG VÆRI ÞÁ AÐ SAMHERJAMENN HAGI SÉR EINS OG ÞEIR EIGI BÖRN?!??!!! Helvítis andskotans „think of the children“ röksemdaleysisþvaður sem kemur frá þessum manni.“
Svo skrifar Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata og deilir frétt Eyjunnar um grein Gunnars Braga Sveinssonar, þingmanns Miðflokksins, í Morgunblaðinu í dag.
Þar fordæmir Gunnar Bragi fréttaflutning af Samherjamálinu, hann sé allur í æsifréttastíl og biður um að tillit sé tekið til barna starfsfólks Samherja.
Björn Leví er á öndverðum meiði:
„Nei, það á ekki að sýna svona bulli neinn fjandans skilning. Það á að hafna svona málflutningi á núll einni og segja fólki að haga sér frekar eins og börn. Þau eru að minnsta kosti heiðarleg.“
Sjá nánar: Gunnar Bragi minnir á að Samherjamenn eiga börn
Björn Leví vísar í Simpson þættina sívinsælu, hvar prestsfrúin Helen Lovejoy, í mikilli geðshræringu, minnti ætíð á að einhver þyrfti nú að hugsa um börnin þegar mikið stóð til í þáttunum.
Sjá nánar hér að neðan: