fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Eyjan

Bankaráðsmaður efast um lögmæti leynisamnings Más – „Mjög óeðlilegur“

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 25. október 2019 09:33

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samningurinn sem Már Guðmundsson, þáverandi seðlabankastjóri, gerði við Ingibjörgu Guðbjartsdóttur, þáverandi framkvæmdastjóra gjaldeyriseftirlits bankans upp á 18 milljónir króna, er óeðlilegur og fram úr hófi segir Sigurður Kári Kristjánsson, lögmaður, bankaráðsmaður Seðlabanka Íslands og fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

 „Ég get bara talað fyrir sjálfan mig, en eins og málið horfir við mér þá tel ég að þessi samningur sé mjög óeðlilegur. Hann er úr öllu hófi samkvæmt öllum hefðbundnum mælikvörðum. Ég hef miklar efasemdir um að seðlabankastjóri hafi á þessum tíma haft heimild samkvæmt lögum til að gera þennan samning,“

segir Sigurður Kári við Fréttablaðið og tekur þar með undir orð Gylfa Magnússonar, formanns bankaráðs Seðlabankans.

Ekkert óeðlilegt vegna „stjörnuleiks“

Már Guðmundsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, telur ekkert óeðlilegt við samninginn. Már segir að Ingibjörg hafi sýnt „stjörnuleik“ í störfum sínum fyrir bankann, en hún kom þó ekki að starfa fyrir bankann að námi loknu. Már sagði að samningurinn væri ekki sá eini sinnar tegundar, hvorki í viðskiptalífinu né í seðlabankanum, þar sem margir slíkir hafi verið gerðir þar, bæði í hans tíð og áður.

Sjá nánar: Már réttlætir leynisamninginn og sér ekki eftir neinu- „Ekkert óeðlilegt við þetta“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sakar Reykjavíkurborg um að draga lappirnar varðandi viðbrögð við rafhjólaslysum

Sakar Reykjavíkurborg um að draga lappirnar varðandi viðbrögð við rafhjólaslysum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir sigur Kristrúnar og Samfylkingarinnar geta orðið mun stærri en búist er við

Segir sigur Kristrúnar og Samfylkingarinnar geta orðið mun stærri en búist er við
Eyjan
Fyrir 1 viku

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kristrún óskar Starmer til hamingju með sögulegan sigur

Kristrún óskar Starmer til hamingju með sögulegan sigur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Gagnrýnir ríkisstjórnina harðlega og líkir við hræddan strút – „Hefur sýnt að hinn almenni borgari getur étið það sem úti frýs“

Gagnrýnir ríkisstjórnina harðlega og líkir við hræddan strút – „Hefur sýnt að hinn almenni borgari getur étið það sem úti frýs“