fbpx
Þriðjudagur 23.júlí 2024
Eyjan

Velja á milli vetnis, rafmagns eða metans sem orkugjafa fyrir Borgarlínu

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 24. október 2019 18:30

Frá vinstri: Lilja G. Karlsdóttir, Hörður Arnarson, Haraldur Hallgrímsson, Stefanía G. Halldórsdóttir, Hrafnkell Á. Proppé, Bergþóra Þorkelsdóttir, Bryndís Friðriksdóttir, Auður Nanna Baldvinsdóttir, Páll Björgvin Guðmundsson og Helgi Jóhannesson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landsvirkjun, Strætó, Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Vegagerðin hafa efnt til samstarfs um greiningu á hentugasta orkugjafa fyrir Borgarlínu, samkvæmt tilkynningu.

„Borgarlínan hefur verið í þróun um árabil, en nú er komið að því að taka markviss skref til að byggja undir ákvörðun um orkugjafa Borgarlínu. Fyrir liggur að orkugjafinn á að vera  vistvænn og innlendur. Verkefnið er unnið í tengslum við fyrstu framkvæmdir Borgarlínu sem eiga að hefjast árið 2021 og leiðarkerfisbreytingu Strætó sem unnið er nú að í samvinnu við verkefnastofu Borgarlínu og miðað er við að komi til framkvæmda með akstri fyrstu tveggja Borgarlínuleiða árið 2023.“

Borgarlínan verður hluti af leiðarkerfi Strætó bs., en fyrirtækið hefur verið sagt leiðandi í orkuskiptum á Íslandi og hefur haft þá stefnu að kaupa ekki fleiri dísilvagna fyrir strætisvagnakerfi höfuðborgarsvæðisins.

Vetni, rafhlöður og metan – mismunandi styrkleikar orkugjafa

Markmiðið er að orkugjafi Borgarlínu verði vistvænn og innlendur. Vetni, rafhlöður og metan hafa mismunandi eiginleika og koma allir til greina fyrir vagna Borgarlínu.

Við valið á orkugjafanum er mikilvægt er að meta orkukostnað og fjárfestingakostnað, auk þess sem taka þarf tillit til margra þátta eins og staðsetningu áfyllingastöðva, rekstraröryggis, útstreymi gróðurhúsalofttegunda, skipulagsmála, staðbundinnar loftmengunar, hljóðmengunar og fleira yfir líftíma verkefnis.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Ráðamenn sem hossa sjálfum sér

Björn Jón skrifar: Ráðamenn sem hossa sjálfum sér
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón Sigurður skrifar – Farsælast að vera fullkomlega sannfærður um eigin ranghugmyndir

Jón Sigurður skrifar – Farsælast að vera fullkomlega sannfærður um eigin ranghugmyndir
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sakar Reykjavíkurborg um að draga lappirnar varðandi viðbrögð við rafhjólaslysum

Sakar Reykjavíkurborg um að draga lappirnar varðandi viðbrögð við rafhjólaslysum