fbpx
Mánudagur 25.nóvember 2024
Eyjan

Ítrekar áhyggjur vegna niðurskurðar sem ógnað geti öryggi sjúklinga – „Grafalvarlegt og má ekki gerast“

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 23. október 2019 16:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Reynir Arngrímsson, formaður læknafélags Íslands, segir í yfirlýsingu í dag að hann taki undir þær áhyggjur sem hafi komið fram vegna ófjármagnaðra launagreiðslna utan áætlana í fjárlögum og fjárlagaheimilda Landspítalans, en upphæðin nemur um milljarði króna. Hann segir ljóst að þetta muni leiða til niðurskurðar og óttast áhrifin af slíkum gjörðum:

„Til að mæta framúrkeyrslu ársins hafa ríflega 40 niðurskurðarliðir verið kynntir til leiks. Ljóst er að svo víðtækur niðurskurður mun víða hafa áhrif í starfsemi sjúkrahússins, m.a. mögulega breytingar á vaktþjónustu lækna. Viðbrögð formanna læknaráðs, hjúkrunarráðs og annarra sem hafa tjáð sig um niðurskurðaráformin eru samhljóma í því mati að þær muni óhjákvæmilega bitna á þjónustu við sjúklinga. Einnig að þær séu til þess fallnar að geta mögulega skert öryggi þeirra sem leita til sjúkrahússins. Það er grafalvarlegt og má ekki gerast.“

Reynir

Yfirlýsingin í heild sinni

Yfirlýsing frá formanni Læknafélags Íslands.

Að gefnu tilefni vil ég ítreka þá skoðun, sem fram kom í viðtali við mig á mbl.is þann 19. október sl. að ófjármagnaðar launagreiðslur utan áætlana í fjárlögum ársins og fjárlagaheimilda Landspítala hafi komið í bakið á yfirstjórn sjúkrahússins. Í ljós hafi komið að engar áætlanir hafi verið um hvernig ætti að fjármagna pakkann sem kominn var í tæpar þúsund miljónir króna umfram heimildir þegar gripið var inn í. Niðurstaðan í dag sé sú að forstjóri sjúkrahússins hafi kynnt að skera þurfi niður verkefni og þjónustu þess um tæpan miljarð á yfirstandandi ári eða um svipaða fjárhæð og umræddar aukagreiðslur utan fjárlaga ársins hafi numið.

Um framangreint tala staðreyndir skýru máli. Til að mæta framúrkeyrslu ársins hafa ríflega 40 niðurskurðarliðir verið kynntir til leiks. Ljóst er að svo víðtækur niðurskurður mun víða hafa áhrif í starfsemi sjúkrahússins, m.a. mögulega breytingar á vaktþjónustu lækna. Viðbrögð formanna læknaráðs, hjúkrunarráðs og annarra sem hafa tjáð sig um niðurskurðaráformin eru samhljóma í því mati að þær muni óhjákvæmilega bitna á þjónustu við sjúklinga. Einnig að þær séu til þess fallnar að geta mögulega skert öryggi þeirra sem leita til sjúkrahússins. Það er grafalvarlegt og má ekki gerast. Ég tek undir þessar áhyggjur sem formaður Læknafélags Íslands.

Nauðsynlegt er að skoða umræddar niðurskurðarfyrirætlanir yfirstjórnar Landspítala í þessu samhengi. Það er einnig óhjákvæmilegt að gefa því gaum að aðrar starfsstéttir en þær sem fengu launaumbun umfram það sem fjárlög og gildandi launviðmið hins opinbera gerðu ráð fyrir í fjárlögum ársins, s.s. lífeindafræðingar, sjúkraliðar og geislafræðingar, hafa einnig verið undir miklu álagi. Gæta þarf jafnræðis við umframgreiðslur launa vegna slíkra aðstæðna en það hefur Landspítalinn ekki gert.

Ég tek jafnframt undir áhyggjur formanna fagráða Landspítalans um að gæta þurfi þess við ákvarðanir um niðurskurð í rekstrarútgjöldum sjúkrahússins að þær bitni ekki á öryggi þeirra sem þangað leita.

Varðandi jafnlaunavottunarferli Landspítalans vil ég að gefnu tilefni benda á að málið snýst ekki um á hversu mörgum tugum eða hundruðum miljóna kostnaður við innleiðingu breska starfsmatskerfisins hleypur á. Miklu frekar, og raunar eingöngu, snýst það um faglegan trúverðugleika yfirstjórnar sjúkrahússins.

Við forprófanir hefur komið í ljós að starfsmatskerfið tekur hvorki tillit til þeirra frumkrafna, s.s. menntunar og sérfræðiþjálfunar, sem gerðar eru til læknisstarfsins né metur kerfið eðli og inntak læknisstarfsins með eðlilegum hætti. Þess er heldur ekki að vænta því læknar eru ekki hluti af þessu breska kerfi. Læknar voru einfaldlega teknir út úr menginu. Svokölluð aðlögun og íslensk staðfæring breska kerfisins til að meta störf lækna í jafnlaunaferlinu hefur mistekist hrapalega í höndum Landspítalans. Á það hafa læknaráð Landspítala, Læknafélag Íslands og aðildarfélög þess, Félag sjúkrahúslækna og Félag almennra lækna, bent á ítrekað frá því í febrúar sl.

Þrátt fyrir þetta stefnir yfirstjórn spítalans á að grundvalla jafnlaunavottun sína á þessu kerfi sem er með innbyggðum villum varðandi mat á störfum lækna. Slíkum ófaglegum vinnubrögðum og ákvörðunum verður staðfastlega að mótmæla.

Kópavogi, 23. október 2019

Reynir Arngrímsson, formaður Læknafélags Íslands

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Atlaga Stefáns Einars að Þórði Snæ hjálpar Samfylkingu – tryggir jafnvel kjör fyrrum ritstjóra Fréttablaðsins

Orðið á götunni: Atlaga Stefáns Einars að Þórði Snæ hjálpar Samfylkingu – tryggir jafnvel kjör fyrrum ritstjóra Fréttablaðsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Steinunn Ólína skrifar: Óheiðarleiki er smitsjúkdómur

Steinunn Ólína skrifar: Óheiðarleiki er smitsjúkdómur
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Ræðum ESB!

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Ræðum ESB!
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sér íslenskir skattar og yndi stjórnlyndra flokka

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sér íslenskir skattar og yndi stjórnlyndra flokka