fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Eyjan

Veita 30 milljónum til 112 hleðslustöðva um allt land

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 22. október 2019 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orkusjóður hefur úthlutað styrkjum til uppsetningar hleðslustöðva við gististaði um land allt þar sem hægt verður að hlaða ríflega 110 rafbíla á hverjum tíma. Verkefnið er hluti af aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum og uppbyggingu innviða vegna orkuskipta í samgöngum, samkvæmt tilkynningu.

Þrír ráðherrar ríkisstjórnarinnar kynntu í sumar markvissa uppbyggingu innviða vegna orkuskipta í samgöngum. Sama dag var auglýst eftir fjárfestingarstyrkjum til uppbyggingar hleðslustöðva fyrir rafbíla við gististaði. Var Orkusjóði falið að sjá um úthlutun styrkjanna. Alls verða veittir 26 styrkir til að setja upp 112 hleðslupunkta vítt og breitt um landið. Heildarfjárhæð styrkjanna nemur ríflega 30 milljónum króna. Gert er ráð fyrir að minnsta kosti helmings mótframlagi umsækjenda og nemur heildarfjárfesting verkefnanna því 60 milljónum króna hið minnsta.

Áhrif innkaupa bílaleiga á samsetningu bílaflotans eru sögð veruleg þar sem bílaleigubílar eru tæpur helmingur allra nýskráðra bifreiða á Íslandi. Styrkveitingarnar eru liður í að fjölga hleðslumöguleikum við gististaði til að hvetja til og liðka fyrir orkuskiptum hjá bílaleigum hér á landi.

Á næstunni verður enn fremur úthlutað fjárfestingarstyrkjum til uppbyggingar á hraðhleðslustöðvum fyrir rafbíla, en þeir styrkir voru einnig auglýstir í sumar. Fjöldi umsókna barst og ráðgjafanefnd Orkusjóðs vinnur nú að því að fara yfir þær. Þeim styrkjum er ætlað að styrkja uppbyggingu hraðhleðslustöðva á lykilstöðum og tryggja þannig hindrunarlausar ferðir rafbíla milli landshluta, enda fjölgar rafbílum hratt hér á landi. Ísland er nú í öðru sæti í heiminum á eftir Noregi hvað varðar hlutfall rafbíla af fjölda nýskráðra bifreiða.

Ofangreindir styrkir byggja á tillögum starfshóps sem ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra skipuðu í byrjun árs og var falið að móta tillögur um aðgerðir til að hraða orkuskiptum hér á landi, í samræmi við aðgerðaáætlanir um orkuskipti og loftslagsmál.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Samfélag til að græða á

Sigmundur Ernir skrifar: Samfélag til að græða á