fbpx
Föstudagur 25.apríl 2025
Eyjan

Sigurður Ingi sagður hafa hlaupið á sig í morgun – Reiði og titringur sagður innan ríkisstjórnarinnar og samstarfsflokka

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 17. október 2019 16:28

Sigurður Ingi Jóhannsson Mynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikil óánægja ríkir í stjórnarsamstarfinu þar sem samgönguáætlun Sigurðar Inga Jóhannssonar samgönguráðherra, er hann kynnti í morgun, hafi ekki verið rædd né samþykkt af þingflokkum ríkisstjórnarflokkanna. Sigurður Ingi kynnti áætlunina á blaðamannafundi í morgun og er hún komin inn á vef Stjórnarráðsins. Fréttablaðið greinir frá.

Samkvæmt blaðinu fengu hvorki ríkisstjórnin né þingflokkar stjórnarflokkanna kynningu á málinu og eru ráðherrar ríkisstjórnarinnar, bæði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra, sögð hafa lesið um málið fyrst í fjölmiðlum.

Heimildir Fréttablaðsins herma að fundað hafi verið í fáti í gær þar sem boðað hafi verið til skyndifunda vegna málsins. Þeir hafi þó litlu skilað og því sé mikil óánægja með frumhlaup ráðherra, eins og það hafi verið orðað, þar sem skilningur manna var sá að málið yrði unnið í fullkomnu samráði. Sigurður Ingi sagði á fundinum í morgun að áætlunin gæti vissulega tekið breytingum í þinglegri meðferð.

Myndi ekki orða það þannig

Birgir Ármannsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, vildi í samtali við Eyjuna ekki taka undir frétt Fréttablaðsins um að titrings gætti vegna málsins, né að Sigurður Ingi hefði orðið uppvís að stjórnsýslulegri fljótfærni:

„Ég myndi ekki orða það þannig nei. Ég ætla ekkert að kommentera á þetta, það er bara þannig að ráðherra getur auðvitað kynnt hvað hann ætlar að leggja til, en málið á auðvitað eftir að fá meðferð bæði á vettvangi ríkisstjórnar og í þingflokkum ríkisstjórnarflokkanna áður en það fer  inn á þingið, þar sem við tekur hefðbundið ferli.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Mesta lýðræðisógn okkar tíma

Sigmundur Ernir skrifar: Mesta lýðræðisógn okkar tíma
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Hanna Katrín: Veiðigjöld eiga ekki að byggja á innanhússverði hjá fiskvinnslu og veiðum sem eru undir sama hatti

Hanna Katrín: Veiðigjöld eiga ekki að byggja á innanhússverði hjá fiskvinnslu og veiðum sem eru undir sama hatti
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Raunheimar forstjóra og ráðherra

Þorsteinn Pálsson skrifar: Raunheimar forstjóra og ráðherra
Eyjan
Fyrir 1 viku

Guðmundur Ingi Kristinsson: Embættismennirnir leggjast á árar með okkur

Guðmundur Ingi Kristinsson: Embættismennirnir leggjast á árar með okkur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Guðmundur Ingi Kristinsson: Fullkomin samheldni og skýr sýn á verkefnin – ekki veikan hlekk að finna í ríkisstjórninni

Guðmundur Ingi Kristinsson: Fullkomin samheldni og skýr sýn á verkefnin – ekki veikan hlekk að finna í ríkisstjórninni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Blaut tuska ríkisstjórnarinnar í andlit meirihluta þjóðarinnar – Ber Inga Sæland ábyrgð?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Blaut tuska ríkisstjórnarinnar í andlit meirihluta þjóðarinnar – Ber Inga Sæland ábyrgð?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Risakauphækkun hjá Ásgeiri Jónssyni á síðasta ári – Fékk launaleiðréttingu og orlofsuppgjör ofan á kauphækkun

Risakauphækkun hjá Ásgeiri Jónssyni á síðasta ári – Fékk launaleiðréttingu og orlofsuppgjör ofan á kauphækkun
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Steinunn Ólína skrifar: Kynslóðir í kreppu

Steinunn Ólína skrifar: Kynslóðir í kreppu