Bóndadagurinn er í dag og á þeim degi er við hæfi að konur gleðji bóndann í þeirra lífi: maka, föður, bróður, son og/eða góðan vin.
Á mörgum vinnustöðum hefur einnig skapast sú hefð að gefa bændum á vinnustaðnum gjöf í tilefni dagsins og jafnvel að bjóða upp á eitthvað bakkelsi í tilefni dagsins.
Ónefnt fyrirtæki hér í bæ sérpantaði köku fyrir starfsmenn sína sem er í takt við eitt af heitustu umræðuefnum síðustu daga, skemmst er frá því að segja að kakan fór ekki fyrir brjóstið á neinum starfsmönnum og rann ljúflega niður.