Oddvitar Miðflokksins og Flokks fólksins í Reykjavík, þær Vigdís Hauksdóttir og Kolbrún Baldursdóttir, hyggjast leggja fram tillögu á næsta borgarstjórnarfundi um að braggamálinu verði vísað til héraðssaksóknara til frekari rannsóknar, vegna athugasemda og ábendinga um lögbrot í skýrslu innri endurskoðunar um málið:
„Við verðum að fleyta þessari skýrslu áfram, það eru það alvarlegar athugasemdir sem eru gerðar við stjórnsýslu borgarinnar. Við Kolbrún værum að bregðast eftirlitshlutverki okkar ef við létum þessa skýrslu liggja. Það er ekki hægt að horfa fram hjá þessu. Þetta er það alvarlegt mál. Við munum leggja fram dagskrárlið í borgarstjórn á þriðjudaginn, sem snýr að það því að fá umræðu um hvort þetta á að fara inn á borð héraðssaksóknara. Í borgarstjórn eru 23 fulltrúar, allir hafa atkvæðisrétt, það er rétti vettvangurinn til að halda málinu áfram og fá þá skoðun allra borgarfulltrúa,“
sagði Vigdís við Eyjuna.
Hallur Símonarson, innri endurskoðandi Reykjavíkurborgar, var á fundi borgarráðs í dag og viðurkenndi þar að skýrslan væri ekki tæmandi úttekt og bar fyrir sig tímaskorti. Vigdís telur að skýrsla innri endurskoðunar sé því ekki fullnægjandi, þar séu mál sem þurfi að rýna betur í.
„Það er svo mikið af lögbrotum sem koma fram í skýrslunni. Innri endurskoðandi var á fundi borgarráðs, það kom enn frekar fram í máli hans að þetta væri ekki tæmandi úttekt, eins og ég var búin að benda á. Þetta sannar að það þurfti að gera óháða rannsókn. Til dæmis er ekki búið að kanna sannleiksgildi reikninganna, það eru rosalega háir reikningar fyrir einstaka verkþætti. Það var ekki farið nægilega vel í það að skoða tölvupósta, þeir báru fyrir sig tímaskort. Þó að skýrslan sé ágæt, þá eru þarna hlutir sem þarfnast enn frekari skoðunar.“
Í bókun Vigdísar í dag kemur fram að hún undrist að borgarstjóri, borgarritari og borgarlögmaður hafi ekki vikið af fundi undir dagskrárliðnum þar sem braggamálið var til umfjöllunar:
„Þessir aðilar eru persónur og leikendur þegar kemur að braggamálinu. Kjörnir fulltrúar verða að hafa frelsi til beinna samskipta við skýrsluhöfunda í svo alvarlegum málum án áheyrnar þeirra sem um er fjallað í skýrslunni. Það er mjög nauðsynlegt ekki síst í ljósi þess að mikilvægt er að aðilar geti ekki samræmt framburð sinn eftir því hvernig spurningum borgarfulltrúa og svörum innri endurskoðunar framvindur.“