fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Eyjan

Umhverfisráðherra: „Hér getum við lagt okkar af mörkum“

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 10. september 2019 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og Inger Andersen, framkvæmdastjóri Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNEP) undirrituðu í fyrradag viljayfirlýsingu Íslands og UNEP um samstarf á sviði landgræðslu. Guðmundur Ingi er staddur á aðildarríkjaþingi Eyðimerkursamnings Sameinuðu þjóðanna (UNCCD) í Nýju Delí á Indlandi þar sem ráðherrahluti þingsins hófst í gær.

,,Með þessari yfirlýsingu viljum við vinna að því að koma á formlegu samstarfi með Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna um landgræðsluverkefni í þróunarlöndum sem hluta af þróunarsamvinnu Íslands. Þannig getum við m.a. byggt á vinnu Landgræðsluskóla Háskóla SÞ og aldagamalli þekkingu okkar og reynslu í baráttunni gegn landeyðingu og fyrir endurheimt landgæða. Ég bind miklar vonir við þetta samstarf enda endurheimt landgæða einn stærsti þátturinn í baráttunni við loftslagsvána. Hér getum við lagt okkar af mörkum,“

segir Guðmundur Ingi.

Í yfirlýsingunni er sérstök áhersla á þróunarríki í Afríku en það byggir á svipaðri hugmyndafræði og samstarfsverkefni Íslands og UNEP um málefni jarðhita í álfunni. Gert er ráð fyrir að íslenskir sérfræðingar og fulltrúar UNEP muni á næstu mánuðum vinna að sameiginlegri tillögugerð um mögulegar fjármögnunarleiðir stærri verkefna.

Landnotkun, loftslagsbreytingar og sjálfbær orka í forgrunni

Á aðildarríkjaþingi Eyðimerkursamningsins í gær stýrði Guðmundur Ingi hringborði með fulltrúum 40 ríkja þar sem meginviðfangsefnið var landnotkun, loftslagsbreytingar og sjálfbær orka. Hann átti einnig fund með Yannick Glenmarec, framkvæmdastjóra Græna loftslagssjóðsins (Green Climate Fund), auk þess sem hann sat hádegisverðarfund í boði Amina J. Mohammed, aðstoðarframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna með ráðherrum víðs vegar að úr heiminum þar sem rætt var um landnýtingu og loftslag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Samfélag til að græða á

Sigmundur Ernir skrifar: Samfélag til að græða á