fbpx
Sunnudagur 14.desember 2025
Eyjan

Fylgi Framsóknarflokksins minnkar – Lítil áhrif af orkupakkamálinu

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 10. september 2019 07:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjálfstæðisflokkurinn mælist enn stærsti flokkur landsins samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Á eftir honum koma fimm flokkar með tíu til fimmtán prósenta fylgi. Framsóknarflokkurinn stendur þar nokkuð að baki með rúmlega sex prósenta fylgi.

Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag og vitnar í nýja könnun sem Zenter rannsóknir gerðu. Fram kemur að níu af hverjum tíu þeirra sem sögðust myndu kjósa Miðflokkinn segir orkupakkamálið hafa haft mikil áhrif á sig. Hjá Flokki fólksins á það sama við um tvo þriðju hluta kjósenda. Annars virðist málið ekki hafa haft mikil áhrif á hina flokkana.

Fylgi Framsóknar mælist nú 6,2% en í síðustu þingkosningum fékk hann tæplega 11% atkvæða. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist 21,5% en hann fékk 25,3% atkvæða í síðustu þingkosningum. Fylgi Samfylkingarinnar mældist 13,9% en flokkurinn fékk 12,1% atkvæða í síðustu þingkosningum. Miðflokkurinn mælist með 12,9% fylgi en fékk 10,9% í síðustu þingkosningum. Vinstri græn mælast með 12,5% fylgi en fengu 16,9% í síðustu kosningum. Fylgi Pírata mælist 12,3% en var 9,2% í síðustu kosningum. Fylgi Viðreisnar mælist nú 11,4% en var 6,7% í síðustu kosningum. Fylgi Flokks fólksins mælist nú 4% en var 6,9% í síðustu kosningum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

María Rut Kristinsdóttir: Á óttaslóðum

María Rut Kristinsdóttir: Á óttaslóðum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Miðflokkurinn sótti handbók í lýðskrumi til Trump – beinir málflutningi sínum að fólkinu við eldhúsborðið

Orðið á götunni: Miðflokkurinn sótti handbók í lýðskrumi til Trump – beinir málflutningi sínum að fólkinu við eldhúsborðið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Tölum um krónuna … í alvöru!

Thomas Möller skrifar: Tölum um krónuna … í alvöru!
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigvaldi Einarsson skrifar: Kjarnorka á Austfjörðum – eða vindmyllur á hálendinu?

Sigvaldi Einarsson skrifar: Kjarnorka á Austfjörðum – eða vindmyllur á hálendinu?