„Það eru allskonar spekulasjónir í gangi, ég veit ekkert meira en þú um það. Það liggur ekkert fyrir um hver tillaga hans (Bjarna) til þingflokksins verður, það eru allir í óvissu með þetta,“
sagði Birgir Ármannsson við Eyjuna í dag, en margir velta nú vöngum yfir hver verði nýr dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, sem skipaður verður á ríkisráðsfundi á Bessastöðum á morgun.
Birgir hefur verið nefndur sem eins konar millilending fyrir Bjarna, gagnvart Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur og Brynjars Níelssonar, hvað varðar bakland Sjálfstæðisflokksins, sem enn er í sárum vegna þriðja orkupakkans.
Það er ekki talið bæta ástandið verði Áslaug skipuð, en íhaldsarmur baklands Sjálfstæðisflokksins hefur gagnrýnt hana harðlega vegna reynsluleysis og ungs aldurs. Því hefur Brynjar Níelsson verið nefndur sem líklegur kostur, en hann þykir afar vinsæll hjá áðurnefndum íhaldsarmi.
Birgir sagði við Eyjuna að Bjarni hefði engin fyrirheit gefið um skipunina og aðspurður um hvernig hann mæti sína stöðu, svaraði hann:
„Það eru margir í þingflokknum sem koma til greina á mismunandi forsendum og það verður bara að koma í ljós hvað formaðurinn gerir.“
Birgir sagði einnig að það væri ekki búið að skýrast hvenær Bjarni myndi funda með þingflokknum um málið, en það yrði í kvöld eða í fyrramálið.