„Meirihlutinn stærir sig af því að vera nánast búin að fullmanna leikskóla borginnar en ég var að fá póst þess efnis að dóttir mín og hin börnin á leikskólanum muni verða send heim á næstu dögum vegna manneklu. Óboðlegt ástand fyrir foreldra og börn í Reykjavík, en ekki síður starfandi starfsfólk leikskólanna.“
Svo hljómar færsla Katrínar Atladóttur í dag, en hún er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
Reykjavíkurborg sendi í síðustu viku út tilkynningu þess efnis að búið væri að ráða í meirihluta starfa innan skólakerfisins í borginni.
Á fundi borgarráðs þann 22. ágúst kom fram að alls 1328 börn væru á biðlista eftir að komast að í frístund eftir að skólatíma lýkur og átti eftir að ráða í 206 stöðugildi, þar af um 100 stöðugildi í frístundarheimilum, sem eru um 200 manns þar sem um hálft starf er að ræða. Alls er búist við að um 4000 börn nýti sér frístundaúrræðið í vetur, en að jafnaði starfa um 950 manns hjá frístundaheimilum í 440 stöðugildum.
Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, sagði að nauðsynlegt væri að leiðrétta launamál til að fá fólk til að vinna við barnagæslu:
„Í almennri umræðu hafa launamál verið nefnd í tengslum við stöðuráðningar en mörg störf innan skóla- og frístundasviðs eru láglaunuð og nauðsynlegt er að búa starfsfólki aðstæður þar sem laun eru mannsæmandi. Auglýsingaherferð skóla- og frístundasviðs sýnir fram á mikilvægi starfanna og því er erfitt að skilja misskiptingu innan borgarkerfisins, þar sem þeir sem eru hæst launaðir hafa margfalt hærri laun en margir sem starfa hjá sviðinu. Nauðsynlegt er að leiðrétta launamál í þessu samhengi sem óneitanlega hlýtur að spila inn í hvort fólk ákveði að ráða sig til starfa.“
Sjá nánar: Búið að ráða í 98% stöðugilda í grunnskólum og 96% í leikskólum