fbpx
Miðvikudagur 02.apríl 2025
Eyjan

Frekari stýrivaxtalækkun sögð í kortunum

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 22. ágúst 2019 11:08

Ásgeir og Már Guðmundsson. Mynd_Eyþór DV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í Korni Íslandsbanka er því spáð að peningastefnunefnd Seðlabankans ákveði að lækka vexti um 0,25 prósentustig við næstu vaxtaákvörðun þann 28. ágúst. Meginvextir bankans, vextir á 7 daga bundnum innlánum, verða samkvæmt því 3,50%.

Nýr seðlabankastjóri, Ásgeir Jónsson, hefur sagt í viðtölum að frekari lækkun vaxta á næstunni sé möguleg.

Einn kaus gegn vaxtalækkun í júní

Við síðustu ákvörðun, í júní síðastliðnum, lækkaði peningastefnunefnd stýrivexti um 25 punkta og hafa þeir lækkað um 75 punkta það sem af er þessu ári. Í júní voru fjórir meðlimir nefndarinnar fylgjandi því að lækka vexti en einn nefndarmaður greiddi atkvæði gegn lækkun og vildi halda vöxtum óbreyttum. Við ákvörðunina var horft til þess að samdráttur í þjóðarbúskapnum gæti varið lengur en áður var talið, verðbólguvæntingar hefðu lækkað frá síðustu ákvörðun og að útlit væri fyrir að verðbólga myndi hjaðna í átt að markmiði (2,5%) á þessu ári.

Ekki miklar breytingar frá því síðast

Frá síðustu ákvörðun hafa ekki verið miklar sviptingar í efnahagslífinu, fyrir utan nokkra styrkingu krónunnar í júlí. Enn er útlit fyrir samdrátt á árinu ásamt því að slaknað hefur bæði á verðbólguvæntingum og verðbólguhorfum. Að mati nefndarmanna mun peningastefnan á næstunni ráðast af samspili þróunar efnahagsumsvifa annars vegar og verðbólgu og verðbólguvæntinga hins vegar.

„Við teljum að það gefi sterklega til kynna að nefndarmenn séu tilbúin til að lækka vexti enn frekar og taki skrefið til 25 punkta lækkunar í næstu viku.“

segir í Korni Íslandsbanka.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Sagan endurtekur sig – stjórnarandstaðan leggst lágt eins og 2009-2013

Orðið á götunni: Sagan endurtekur sig – stjórnarandstaðan leggst lágt eins og 2009-2013
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Spyr hvort RÚV reki fréttastofu eða stundi skipulagt einelti

Spyr hvort RÚV reki fréttastofu eða stundi skipulagt einelti
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Steinunn Ólína skrifar: Þjóðarátak í ofbeldi

Steinunn Ólína skrifar: Þjóðarátak í ofbeldi
Eyjan
Fyrir 5 dögum

„Við höfum ekki áhuga á útlendingamálum eða að leysa vandamálin á Íslandi“

„Við höfum ekki áhuga á útlendingamálum eða að leysa vandamálin á Íslandi“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Sporin hræða

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Sporin hræða
Eyjan
Fyrir 1 viku

Demókratar sækja að Trump nema einn þingmaður þeirra – Hann fer aðrar leiðir

Demókratar sækja að Trump nema einn þingmaður þeirra – Hann fer aðrar leiðir