Forseti Filippseyja, Rodrigo Duterte, er nú sagður íhuga alvarlega að slíta öllu stjórnmálasambandi við Ísland í kjölfar ályktun Íslands á þingi mannréttindaráðs Sameinuðu Þjóðanna, hvar kallað var eftir óháðri rannsókn á stöðu mannréttindamála í landinu. Var tillagan samþykkt, en í yfirlýsingu talsmanns Duterte í gær kemur fram að forsetinn hyggist skoða fyrir alvöru að slíta öllum stjórnmálatengslum við Ísland vegna yfirlýsingarinnar.
Þar segir Salvador Panelo, að ályktun Íslands sé „fáránlega einhliða, svívirðilega þröngsýn og meinfýsnar öfgar,“ en Panelo hefur áður sagt að slitin muni hafa lítil áhrif á Filipseyjar, aðeins séu um 2000 Filippseyingar á Íslandi, lítil sem engin viðskipti væru milli landanna, nema kannski er varða fisk, en hann væri ekki alveg viss.
Fréttablaðið greinir frá því að Filippseyingar hér á landi séu margir uggandi yfir þróun mála, en rætt er við nokkra í blaðinu í dag, sem þó vilja ekki koma fram undir nafni af ótta um öryggi sitt og fjölskyldu sinnar:
„Þetta er mjög viðkvæmt og maður verður að passa sig. Fólk hefur verið drepið út af þessu. Fólk í Filippseyjum getur alveg tjáð sig en það er alltaf vandræði sem fylgja þessu.“
„Ég fer bráðum til Filippseyja og vil ekki vera stoppaður á flugvellinum fyrir það sem ég segi.“
Lilja Védís Hólmsdóttir er fulltrúi Filippseyinga á Íslandi í Evrópusamtökum Filippseyinga og hefur búið hér á landi í 20 ár. Hún segir við Fréttablaðið að hún fagni ályktun Íslands, en segir landa sína hér á landi klofna í afstöðu sinni:
„Stjórnmál í Filippseyjum eru mjög svæðisbundin og það endurspeglast á meðal Íslendinga á Íslandi. Marcos var frá Ilocos, eiginkona hans Imelda frá Leyte, og Duterte frá Davao. Þeir Íslendingar sem koma frá þessum stöðum styðja Duterte nær undantekningarlaust. Filippseyingar halda mikið upp á þá sem gera eitthvað fyrir sitt heimahérað. Eins og um kvikmynda eða poppstjörnur væri að ræða,“
segir Lilja og bætir við:
„Ég sjálf hef ég engu að tapa. Ég er nú þegar ríkisborgari hér en hjarta mitt er enn þá með Filippseyjum. Það er skárra ef þú þekkir til. Til dæmis eru margir Íslendingar sem eiga maka frá Filippseyjum. En ef þú þekkir engan skaltu ekki fara, það er ekki óhætt. Ég á þrettán ára frænda sem langar mikið til að fara til Filippseyja en ég sagði honum að gera það ekki fyrr en þessi hætta væri liðin hjá.“