fbpx
Fimmtudagur 10.apríl 2025
Eyjan

Katrín Jakobsdóttir um flóttafólk árið 2016: „Það er okkar skylda að hjálpa fólki og við getum tekið á móti fleirum“

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 4. júlí 2019 13:25

Katrín Jakobsdóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Miklar umræður hafa skapast síðustu daga um brottvísanir hælisleitandi barna frá Íslandi, en í dag verður mótmælaganga frá Hallgrímskirkju niður á Austurvöll til að vekja athygli á að endursenda eigi börn til Grikklands, þar sem þeirra bíður aðeins ömurð og óvissa.

Hefur þingflokkur VG fengið mikla útreið í umræðunni, en það sem af er árinu 2019 hafa yfirvöld synjað  75 börnum á flótta um alþjóðlega vernd, á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, sem sumir segja að sé brot á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, er kveður á um vernd barna og grundvallarmannréttinda þeirra.

Hefur Umboðsmaður barna kallað eftir fundi við dómsmálaráðherra og forstjóra Útlendingastofnunnar til að fara yfir mál barna sem fjallað hefur verið um í vikunni, sem senda á til Grikklands.

Sjá nánar: Mótmælaganga vegna brottvísunar flóttabarna frá landinu – „Líkamlegt og andlegt ofbeldi“

Getum tekið við fleirum

Samtökin Akkeri, sem „hafa það að markmiði að nýta þekkingu og reynslu þeirra sem hafa starfað sem sjálfboðaliðar við að taka á móti fólki á flótta og efla áframhaldandi hjálparstarf,“birtu árið 2016 myndband sem Katrín Jakobsdóttir, þá þingmaður Vinstri grænna, tók upp og sendi á samtökin þann 4. júlí sama ár.

„Akkeri óskaði á dögunum eftir myndböndum frá fólki sem vill bjóða flóttafólk velkomið. Við ætlum næstu daga að birta nokkur sýnishorn af þeim fallegu kveðjum sem við höfum fengið og byrjum á þessu myndbandi frá Katrín Jakobsdóttir, formanni vinstri grænna, þar sem hún segir það vera skyldu okkar allra að hjálpa fólki í neyð,“

segir á Facebooksíðu samtakanna.

Í myndbandinu, sem sjá má hér að neðan, segir Katrín meðal annars:

„Það er okkar skylda að hjálpa fólki og við getum tekið á móti fleirum“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Sægreifar panta skipulegar árásir úr öllum áttum á fyrirhugaða hækkun veiðileyfagjalda

Orðið á götunni: Sægreifar panta skipulegar árásir úr öllum áttum á fyrirhugaða hækkun veiðileyfagjalda
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Vill láta kjósa um ESB-viðræður strax á þessu ári – Bandaríkin hafi snúið heimsmyndinni á hvolf

Vill láta kjósa um ESB-viðræður strax á þessu ári – Bandaríkin hafi snúið heimsmyndinni á hvolf
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ber mál Le Pen saman við mál Flokks fólksins

Ber mál Le Pen saman við mál Flokks fólksins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Logi Einarsson: Gerum eins og Apple gerir – samþættum tækniþróun og hönnun

Logi Einarsson: Gerum eins og Apple gerir – samþættum tækniþróun og hönnun
Eyjan
Fyrir 1 viku

Trump fagnaði og sagði að áætlun hans væri að ganga upp – Setja Kínverjar honum stólinn fyrir dyrnar?

Trump fagnaði og sagði að áætlun hans væri að ganga upp – Setja Kínverjar honum stólinn fyrir dyrnar?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Þú kaupir af Guðbjörgu í hverri viku – umframhagnaður sægreifa fer í að kaupa upp atvinnulífið

Orðið á götunni: Þú kaupir af Guðbjörgu í hverri viku – umframhagnaður sægreifa fer í að kaupa upp atvinnulífið