Eyrún Magnúsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri vefritsins Kjarnans og tekur hún við af Þórði Snæ Júlíussyni, sem hefur sinnt því samhliða ritstjórastarfinu frá byrjun árs 2018, af því er segir á vefsíðu Kjarnans.
Þar segir um Eyrúnu:
Eyrún hefur síðastliðin tæp sjö ár haft umsjón með og ritstýrt Sunnudagsblaði Morgunblaðsins en starfaði þar áður sem ráðgjafi árum saman þar sem hún kom að ýmis konar verkefnastjórnun, markaðs- og útgáfumálum og stefnumótunarvinnu. Hún starfaði einnig á RÚV á árunum 2004 til 2006 og var meðal annars einn þáttastjórnenda Kastljóss á því tímabili. Eyrún er með BA gráðu í í hagfræði með sagnfræði sem aukagrein. Þá hefur hún lokið meistaranámi í stjórnun og stefnumótun frá viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.