fbpx
Mánudagur 04.nóvember 2024
Eyjan

Lýsir „ófremdarástandi“ hjá embætti Sýslumanns: „Algjörlega óboðlegt!“

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 30. apríl 2019 12:55

Helga Vala Helgadóttir, þingkona Samfylkingarinnar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, gagnrýnir hægaganginn á skrifstofu Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu við afgreiðslu sifjamála. Lagði hún fram fyrirspurn til Þórdísar Kolbrúnar Gylfadóttur, starfandi dómsmálaráðherra,  á þinginu í gær hvernig bregðast ætti við því „ófremdarástandi sem ríkti í málaflokknum:

„Þessi mál varða lítil börn sem fá ekki að umgangast foreldri sitt, maka sem eru að reyna að fá skilnað við ofbeldisfólk en líka mál sem eru í sjálfu sér óskaplega einföld en þarf, lögum samkvæmt, að afgreiða hjá fulltrúa sýslumanns.“

Samkvæmt Helgu Völu er sifjadeild Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu um hálfu ári á eftir áætlun í afgreiðslu mála:

„Staðan er sú að mál er varðar forsjá, lögheimili, skilnaði, umgengni barna við umgengnisforeldri, og leyfi foreldris til að fara með barn í frí til útlanda og komu inn á síðust 7 mánuðum hafa ekki enn farið í úthlutun til starfsmanna. Búið er að úthluta málum sem bárust í september 2018 eða fyrr! Við skulum átta okkur á því að þegar mál hefur verið tekið til umfjöllunar þá á alveg eftir að vinna þau, senda þau til lögbundinnar sáttameðferðar sem tekur óratíma og kveða upp úrskurði þegar það á við.“

Þá segir Helga Vala að fátt hafi verið um svör hjá ráðherra varðandi úrræði:

„Dómsmálaráðherra talaði um að vinna við hagræðingu væri í gangi sem og tæki við rafræn þinglýsing fljótlega sem myndi flýta málum eitthvað og létta á embættinu. Engin svör voru hins vegar tiltæk um hvernig ríkisstjórnin ætlar að koma þeim sem til sýslumanns leita með sín viðkvæmustu mál til aðstoðar. Mér finnst þetta algjörlega óboðlegt!“

Sameining ekki skilað tilsettum árangri

Sýslumannsembættunum var fækkað úr 24 í níu árið 2015, með það að markmiði að efla embættin og gera þau að „miðstöð stjórnsýslu ríkisins í héraði.“ Þá var löggæsla að fullu aðskilin frá sýslumannsembættunum og ný lögregluembætti stofnuð samhliða. Áttu þessar breytingar að leiða af sér aukna hagkvæmni í rekstri.

Samkvæmt niðurstöðu úttektar Ríkisendurskoðunar hafa þessi markmið ekki náðst:

„Hlutfall starfsmanna í stoðþjónustu embættanna er hátt. Eigið fé allra sýslumannsembættanna er orðið neikvætt um 300 milljónir og uppsafnaður rekstrarhalli undanfarinna ára er 500 milljónir.“

Þá er mælt með að sýslumannsembættin taki upp rafræna þjónustu til að flýta fyrir afgreiðslu mála, en flestir kannast við að þurfa að bíða vikum og jafnvel mánuðum saman eftir einföldum afgreiðslum, eins og þinglýsingum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Jóhann Páll: Níu prósent stýrivextir jafngilda ofurskattheimtu á almenning á Íslandi í þágu bankanna

Jóhann Páll: Níu prósent stýrivextir jafngilda ofurskattheimtu á almenning á Íslandi í þágu bankanna
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Ásmundur Einar: „Borgartúnshægrið“ reyndi að hindra hlutdeildarlánin sem hafa heldur betur sannað gildi sitt

Ásmundur Einar: „Borgartúnshægrið“ reyndi að hindra hlutdeildarlánin sem hafa heldur betur sannað gildi sitt
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík suður: Dagur hefur komið inn í kosningabaráttuna af ákveðinni auðmýkt

Oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík suður: Dagur hefur komið inn í kosningabaráttuna af ákveðinni auðmýkt
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Baldur segir að áralöng herferð Morgunblaðsins hafi borið árangur – „Skála líklega í sérpöntuðu kampavíni af fögnuði“

Baldur segir að áralöng herferð Morgunblaðsins hafi borið árangur – „Skála líklega í sérpöntuðu kampavíni af fögnuði“