fbpx
Þriðjudagur 04.mars 2025
Eyjan

Sólveig segir stjórnarmenn í Eflingu hafa misst vinnuna vegna „aktívrar“ þátttöku sinnar

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 8. apríl 2019 15:25

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt Facebookpistli Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar, voru tveir stjórnarmenn í Eflingu reknir úr starfi sínu vegna þátttöku sinnar í verkalýðsbaráttunni. Vísir greinir frá og hefur eftir Viðari Þorsteinssyni, framkvæmdastjóra Eflingar, að þetta sé rétt hjá Sólveigu:

„Ég get staðfest það að stjórnarmenn hjá okkur, sem voru kosnir í stjórn í Eflingu fyrir ári, hefur ýmist verið sagt upp eða neitað um vaktir. Það er ályktun okkar að það sé ekki tilviljun,“

segir Viðar, en vill ekki nafngreina hvaða einstaklingar eða fyrirtæki ættu í hlut.

Í pistli Sólveigar segir:

„Við í Eflingu vorum í samningaviðræðum fram á síðustu stundu. Á lokametrunum náðum við td. inn ákvæði um að atvinnurekendur eigi að sjá fyrir túlkun þegar miðla þarf mikilvægum upplýsingum til starfsfólks, ef að íslenskukunnátta er ekki fyrir hendi og við náðum inn bókun um aukna vernd fyrir þau sem taka þátt í stéttabaráttu með sínu félagi. Bæði þessi atriði eru mjög mikilvæg; ég hef setið á fundi sem fulltrúi Eflingar þar sem tilkynnt var um fjöldauppsögn á íslensku, þrátt fyrir mikinn fjölda starfsmanna af erlendum uppruna og engin tilraun gerð til að túlka það sem fram fór og tveir af stjórnarmeðlimum Eflingar misstu vinnuna vegna aktívrar þátttöku í starfi félagsins.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Steinunn Ólína skrifar: Ayahuasca og andleg reynsla á Landspítalanum

Steinunn Ólína skrifar: Ayahuasca og andleg reynsla á Landspítalanum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Elliði ætlar ekki að skora á fólk að kjósa Jens Garðar – Í staðinn vill hann að Sjálfstæðismenn geri þetta

Elliði ætlar ekki að skora á fólk að kjósa Jens Garðar – Í staðinn vill hann að Sjálfstæðismenn geri þetta
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Baráttan um Sjálfstæðisflokkinn: Áslaug Arna með naumt forskot en Guðrún sögð líklegri til að auka fylgið

Baráttan um Sjálfstæðisflokkinn: Áslaug Arna með naumt forskot en Guðrún sögð líklegri til að auka fylgið
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Þéttum raðirnar í Evrópu!

Thomas Möller skrifar: Þéttum raðirnar í Evrópu!
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Sægreifarnir herða tökin – vilja formann og varaformann – Sjálfstæðisflokkur í brattri brekku velur forystu

Orðið á götunni: Sægreifarnir herða tökin – vilja formann og varaformann – Sjálfstæðisflokkur í brattri brekku velur forystu