Líkt og Eyjan greindi frá þá furðaði Ólafur Ísleifsson, þingmaður Miðflokksins, sig á því að sést hefði til „æðstu manna þjóðkirkjunnar“ á mótmælunum á Austurvelli þegar hælisleitendur mótmæltu aðbúnaði sínum og almennri tilurð landamæra.
Ólafur hafði í pontu Alþingis agnúast út í að Dómkirkjan hefði verið opnuð fyrir hælisleitendum sem þurftu að sinna kalli náttúrunnar og spurði dómsmálaráðherra með hneykslunartón hvort hún deildi áhyggjum sínum yfir því að æðstu menn þjóðkirkjunnar hefðu breytt dómkirkju landsins í „almenningsnáðhús“. Uppskar Ólafur vandlætingarhróp og köll af þessu tilefni frá þingmönnum.
Sjá einnig: Ólafur fékk skammir fyrir að kalla Dómkirkjuna „almenningsnáðhús“ – „Kirkjan opin öllum“ segir prestur
Sjá einnig: Ólafur Ísleifsson gagnrýnir hælisleitendurna harðlega:„Senda þetta fólk úr landi med det samme“
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands er í viðtali við Mannlíf þar sem hún svarar Ólafi og segist líta á hælisleitendur sem fólk:
„Ég lít þannig á náungann að ég elska náungann. Ég elska Guð, náungann og sjálfa mig í þessari röð. Náungi minn eru allar manneskjur og sérstaklega þær manneskjur sem þarfnast hjálpar. Þjóðkirkjan hefur, eins og aðrar kirkjur á Vesturlöndum, látið til sín taka varðandi þessi málefni hælisleitenda vegna þess að við lítum ekki á hælisleitendur sem hælisleitendur, við lítum á þá sem fólk. Hælisleitendur eru bara fólk eins og við en flestir þeirra hafa upplifað miklu erfiðari lífsreynslu en við flest hér á Íslandi vegna þess að þau hafa þurft að flýja sitt land, flýja frá ófriði. Þau eru að sækjast eftir friði og þau eru að sækjast eftir mannréttindum. Þetta vil ég styðja.“
Agnes segir notkun guðshússins hafa verið í anda frelsarans og telur ummæli Ólafs vera ósmekkleg, þó hún virði rétt hans til tjáningarfrelsis:
„Ég fór niður á Austurvöll því það er ekki nóg að tala, það verður líka að fylgja því eftir sem maður er að segja. Maður verður að lifa í samræmi við boðun sína./
Það að opna Dómkirkjuna fyrir öllu fólki, líka fyrir hælisleitendum, er bara í anda frelsarans./
Það er nú þannig að engin manneskja getur stjórnað annarri og maður á nú nóg með að stjórna sjálfum sér þannig að ég ræð svo sem ekki viðbrögðum fólks eða hugsunum og því síður skoðunum. Við búum í frjálsu landi, sem betur fer, og það er öllum frjálst að hafa sína skoðun svo framarlega sem hún meiðir ekki annað fólk. Menn hafa sínar skoðanir og ef það má láta allar skoðanir í ljós á þingi þá hljóta þingmenn að hafa leyfi til þess. En mér finnst þetta frekar ósmekklegt. Það er hægt að nálgast öll mál á mismunandi máta, maður getur verið jákvæður og neikvæður og alls konar en mér fannst þessi umræða frekar í neikvæðari kantinum. Við opnum kirkjurnar fyrir fólkinu okkar og við hjálpum hælisleitendum vegna þess að við erum kristin, ekki vegna þess að þau eru kristin.“