fbpx
Föstudagur 26.júlí 2024
Eyjan

Samfylkingin tapar fylgi

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 4. mars 2019 11:24

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fylgi Samfylkingarinnar minnkar um rúmlega tvö prósentustig milli mánaða, en nær 17% segjast myndu kjósa flokkinn ef kosið yrði til Alþingis í dag, samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallup.

Breytingar á fylgi annarra framboða eru á bilinu 0,2-1,6 prósentustig og eru ekki tölfræðilega marktækar.

Fjórðungur þeirra sem taka afstöðu segist myndi kjósa Sjálfstæðisflokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag, rúmlega 12% Vinstri græn, tæplega 12% Pírata, næstum 10% Viðreisn, 9% Framsóknarflokkinn, nálega 7% Miðflokkinn, 5% Sósíalistaflokk Íslands og ríflega 3% Flokk fólksins.

Rösklega 12% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag og tæplega 10% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp.

Fylgi við ríkisstjórnina mælist einu prósentustigi lægra en fyrir mánuði síðan, en ríflega 48% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja hana.

Spurt var:
Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?

En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?

Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?

Styður þú ríkisstjórnina?

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 31. janúar til 28. febrúar 2019. Heildarúrtaksstærð var 7.060 og
þátttökuhlutfall var 53,5%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,2-1,6%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gall

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Arnar Þór íhugar að stofna nýjan stjórnmálaflokk

Arnar Þór íhugar að stofna nýjan stjórnmálaflokk
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Hvað segja Bretar nú um Brexit?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Hvað segja Bretar nú um Brexit?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Flugfélög: Icelandair stundvísast allra stærri flugfélaga í Evrópu

Flugfélög: Icelandair stundvísast allra stærri flugfélaga í Evrópu