Eyjan

Grímur innblásinn hugmynd frá Steingrími J: „Treysti því að Vestfirðingar berjist fyrir þessari réttmætu kröfu“

Mynd

Grímur Atlason, fyrrverandi bæjarstjóri í Bolungarvík, framkvæmdarstjóri Iceland Airwaves og frambjóðandi Vinstri grænna, er gagnrýninn á sinn fyrrverandi formann, Steingrím J. Sigfússon, þegar kemur að umræðunni á Bakka við Húsavík.

Eins og fram hefur komið fóru útgjöld ríkisins til atvinnuuppbyggingu vegna kísilversins á Bakka 96 prósent fram úr áætlunum og kostuðu skattgreiðendur alls um 4,2 milljarða króna. Þar af fóru um 3.5 milljarðar í jarðgöng og veg sem aðeins starfsmenn kísilversins munu koma til með að nota.

Sjá nánar: Skattgreiðendur borga 3.5 milljarða fyrir göng og veg sem þeir munu aldrei nota – 1.7 milljarða framúrkeysla

Byrjum á Vestfjörðum

Grímur gagnrýnir orð Steingríms um „Bakkablúsinn“, en Steingrímur sagði:

„Það var al­veg ljóst að ríkið myndi þurfa að leggja dá­lítið af mörk­um og var álitið fjár­fest­ing í þeim innviðum sem þyrfti að vera til staðar svo að at­vinnu­upp­bygg­ing gæti þró­ast þar."

Margt annað hægt að gera

Grímur, sem sagði sig úr VG árið 2010, segir ýmislegt hægt að gera fyrir atvinnuuppbyggingu í landinu, ef sveitarfélögin eru vopnuð með slíkri upphæð:

„Ég er með hugmynd. Látum öll svæðin hafa þessa upphæð (4,2 milljarða) og sjáum hvernig þeim tekst að "þróa atvinnuuppbyggingu". Byrjum á Vestfjörðum. Það er hægt að gera ýmislegt annað en göng, sem enginn má nota, fyrir þessa upphæð. Treysti því að Vestfirðingar berjist fyrir þessari réttmætu kröfu.“

Framkvæmdin á Bakka fór alls 1,7 milljarð króna fram úr áætlunum, eða sem nemur 96 prósentum. Ekki liggur heldur fyrir hvort arð­semi hafnarinnar muni duga til að endur­greiða öll lán sem tekin voru vegna stækkunar hennar, samkvæmt  svari Þórdísar Gylfadóttur, iðnaðarráðherra, við fyrirspurn Birgis Þórarinssonar, Miðflokki.