Þegar Bergþór Ólason mætti á fund umhverfis- og samgöngunefndar í morgun, hvar hann hugðist áfram gegna formennsku, mætti honum orðbragð sem „var engu skárra en það sem kom fram hjá mönnum á Klaustri hér forðum,“líkt og Bergþór komst að orði í samtali við mbl.is.
Sagði hann að sér hefði komið á óvart þau orð sem einstakir þingmenn hefðu látið falla á fundinum.
Þingmaður VG, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, hefur svarað þessum athugasemdum Bergþórs á Twitter og segir hann kasta steinum úr glerhúsi, þar sem hún hafi aðeins notað sömu orð og Bergþór notaði á Klaustur barnum:
„Hér er nú aldeilis kastað steinum úr glerhúsi. Orðfærið sem ég notaði var að ég endurtók það sem BÓ sagði á Klaustri…#genderequality #orðhafaáhrif“
Í Klaustursupptökunum heyrðist Bergþór tala um Ingu Sæland, formann Flokks fólksins sem „húrrandi klikkaða kuntu“ og Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráðherra sem „tík“ sem hafi „dregið sig á asnaeyrunum“ og sagði hann einnig um Lilju að þar væri loksins kominn „skrokkur sem typpið á mér dugði í“.
Rósa vísar í myllumerkið genderequality, sem er enska orðið yfir kynjajafnrétti og má skilja tilvísunina sem svo, að hún telji sig hafa náð því fram með því að nota sama fúkyrðaflaum og Bergþór gerði forðum.
Fyrr í dag sagðist Rósa reið yfir þeirri karlrembu sem hefði viðgengist á fundinum:
„Rosalega er ég reið yfir karlrembunni á Alþingi. Áðan lauk miklum átakafundi umsam-nefndar þingsins. Klaustursformaðurinn mætti án nokkurs fyrirvara. Við bárum upp tillögu um að kjósa hann í burtu. Meirihluti nefndarinnar með stuðningi tveggja Klaustursþingmanna kaus gegn því.. „
Hér er nú aldeilis kastað steinum úr glerhúsi. Orðfærið sem ég notaði var að ég endurtók það sem BÓ sagði á Klaustri…#genderequality #orðhafaáhrif https://t.co/sdYbKmtz3E
— Rósa Björk B (@RosaBjorkB) January 29, 2019
Rosalega er ég reið yfir karlrembunni á Alþingi. Áðan lauk miklum átakafundi umsam-nefndar þingsins. Klaustursformaðurinn mætti án nokkurs fyrirvara. Við bárum upp tillögu um að kjósa hann í burtu. Meirihluti nefndarinnar með stuðningi tveggja Klaustursþingmanna kaus gegn því..
— Rósa Björk B (@RosaBjorkB) January 29, 2019