Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, segir ekkert í íslenskum lögum koma í veg fyrir að valdamiklir menn geti látið nauðungavistað einstaklinga sem saka þá um kynferðisbrot. „Staðreyndin er sú að það er fáránlega auðvelt að fá varnarlausa manneskju nauðungarvistaða á Íslandi,“ segir Þórhildur Sunna í í grein á vef Stundarinnar í dag. Telur hún málflutning Aldísar Schram í garð föður síns, Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi utanríkisráðherra og sendiherra, vera trúverðuga. Líkt og DV hefur fjallað um síðustu daga sakar Aldís föður sinn um sifjaspell og að hafa misnotað aðstöðu sína sem sendiherra til að fá lögreglu til að gera aðför að sér.
„Framkoma samfélagsins, stjórnkerfisins og heilbrigðiskerfisins við Aldísi Schram er áfellisdómur yfir réttarríkinu á Íslandi og undirstrikar brýna þörf á víðtækum lagabreytingum til aukinnar verndar þeirra sem vistaðir eru nauðugir á geðdeild,“ segir Þórhildur Sunna. Aldís hefur framvísað vottorði þess efnis að hún sé heil á geði, þvert á fullyrðingar Jóns Baldvins, og vísað í opinber gögn máli sínu til stuðnings:
„Frásögn Aldísar dregur upp þá mynd að þarna hafi valdamikill maður í samfélaginu í krafti stöðu sinnar getað svipt dóttur sína frelsinu og ærunni. Þetta gat hann án nokkurs viðnáms frá því kerfi sem á að standa vörð um réttindi hennar. Jafnvel með fullu samþykki og aðstoð þessa sama kerfis.“
Þórhildur Sunna segir að frásagnir kvennanna vera átakanlegar og það sé umhugsunarefni hvers vegna það sé ekki staðið með þolendum, en sem betur fer hafi átt sér stað vitundarvakning á undanförum árum. Jafnvel á þeim sjö árum sem eru liðin frá því að Guðrún Harðardóttir birti klámfengnu bréfin frá Jóni Baldvin. Staðan sé þó enn slæm þegar kemur að réttarvörslu í nauðungarvistunarmálum:
„Staðan í dag er sú að ekkert í íslenskum lögum kemur í veg fyrir að sagan hennar Aldísar endurtaki sig. Í íslenskum lögum er ekkert sem tryggir að valdamiklir menn misnoti ekki stöðu sína og kerfið til þess að læsa þolendur sína og ásakendur inn á geðdeild og draga þannig úr trúverðugleika frásagna þeirra. Því miður er það svo á Íslandi í dag að lagaramminn sem gildir um nauðungarvistanir, hin svokölluðu lögræðislög, er svo veikur að það kæmi ekki á óvart þótt fleiri óhugnanleg dæmi um þetta leyndust í fortíðinni.“