Framkvæmdakostnaður Vestmannaeyjabæjar vegna Fiskiðjuhússins við Ægisgötu var árið 2017 áætlaður 269 milljónir. Í dag er heildarkostnaðurinn hinsvegar kominn yfir 600 milljónir og er talið að heildarkostnaður endi í um milljarði króna, samkvæmt fyrrverandi bæjarfulltrúa. Fyrirhugað er að bæjarskrifstofurnar verði fluttar í húsið í fyllingu tímans, en framkvæmdum er ekki að fullu lokið. Eyjar.net hafa greint frá málinu.
Deilt var um málið árið 2016 á fundi framkvæmda- og hafnarráðs. Til grundvallar lá verkfundagerð og minnisblað þar sem fram kom að heildarkostnaður framkvæmda utanhúss, hreinsunar og uppbyggingar innanhúss, yrði 270 milljónir, sem dreifðist yfir árin 2014-2017. Þegar Georg Eiður Arnarson, þá fulltrúi E-listans lét bóka harm sinn vegna framúrkeyrslu á kostnaði framkvæmda utanhúss, úr 158 milljónum í allt að 300 milljónir, lét fulltrúi Sjálfstæðisflokks bóka eftirfarandi:
„Kostnaðaráætlun vegna utanhússframkvæmda var 158 milljónir króna og stefna í það að verða 184 milljónir króna. Í minnisblaði framkvæmdastjóra kemur fram að heildarkostnaður Vestmannaeyjabæjar við framkvæmdir í Fiskiðjunni sé áætlaður 270 milljónir króna. Er þar með talið frágangur og hreinsun innanhúss sem ekki voru í áætlunum utanhússframkvæmdar enda um annað verk að ræða. Uppsetning fulltrúa E-lista er því villandi og röng.“
Í maí 2017 sendi Ólafur Snorrason, framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar, kostnaðaráætlun vegna Fiskiðjuhússins á ritstjóra Eyjar.net samkvæmt beiðni. Hún gerði ráð fyrir heildarkostnaði upp á 269 milljónir króna.
Utanhússframkvæmdir voru þar 184 milljónir, innanhússframkvæmdir 17 milljónir, stigahús tæpar 22 milljónir og lóðafrágangur 19 milljónir.
Samkvæmt Ólafi Snorrasyni, framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar, er lítilsháttar frágangur eftir, en staðfestir hann við Eyjar.net að kostnaður sé þegar kominn í 600 milljónir alls.