Iceland Writers Retreat er bókmenntahátíð sem er haldin árlega hvert vor, skipulögð af Elizu Reid forsetafrú og Ericu Green. Hátíðin er nú haldin í fimmta sinn, mér hefur hlotnast sá heiður öll árin að vera kynnir á opnunarkvöldinu. Margir merkilegir höfundar hafa komið hingað til að vera á Iceland Writers Retreat – þátttakendur koma svo víðs vegar að og eiga möguleika á að sitja vinnustofur þar sem höfundarnir leiðbeina um ýmsa fleti ritlistarinnar. Íslenskir höfundar taka líka þátt.
Einn af höfundunum þetta árið er Pamela Paul, sem þar að auki er ritstjóri New York Times Book Review. Meiri áhrifastöðu er vart hægt að hugsa sér hvað varðar umfjöllun um bækur. Bókablaðið fylgir New York Times vikulega með sínu fræga metsölulista og gagnrýni sem getur algjörlega gert útslagið um hvernig bók vegnar.
Pamela Paul hefur einnig skrifað nokkurn fjölda bóka. Sú nýjasta heitir My Life with Bob – en hana vinnur hún upp úr dagbók þar sem hún hefur skráð allar bækur sem hún hefur lesisð síðan hún var 17 ára. Önnur bók eftir hana nefnist Parenting Inc og fjallar um iðnaðinn í kringum barneignir í Bandaríkjunum en einnig má nefna Pornified, en þar skoðar Pamela Paul klámvæðinguna í bandarísku samfélagi. Vegna þeirrar bókar kom hún fyrir þingnefnd í Bandaríkjunum.
Pamela Paul er gestur hjá mér í Kiljunni í kvöld. Við ræðum um bókmenntaumfjöllun, gagnrýni, barnabækur, stjörnugjöf, ást á bókum, örðug samskipti Bandaríkjaforseta og New York Times – jú, og um klám. Þátturinn hefst klukkan 20.30.