Ríkisendurskoðun ítrekar ekki fimm ábendingar til utanríkisráðuneytis frá árinu 2015 um rekstur og starfsemi sendiskrifstofa. Í nýrri eftirfylgniskýrslu bendir stofnunina á að brugðist hafi verið við fjórum ábendinganna með viðunandi hætti. Ráðuneytið hefur hins vegar lýst sig ósammála því að afnema bæri undaþágu um auglýsingaskyldu fyrir stöðu sendiherra. Einnig er litið til þess að frumvarp þess efnis hlaut ekki brautargengi á Alþingi. Því sér Ríkisendurskoðun ekki tilgang með því að ítreka þá ábendingu en minnir á að auglýsingaskylda starfa stuðlar að auknu gagnsæi, jafnræði og vandaðri stjórnsýslu.
Aðrar ábendingar, sem brugðist hefur verið við, lutu að því að koma þyrfti á sérstökum fjárlagalið fyrir fasteignaviðskipti sendiskrifstofa, ljúka úttekt á erlendum fasteignum ráðuneytisins, setja viðmið um lágmarksmönnun sendiskrifstofa og stuðla að jafnri stöðu kynjanna á sendiskrifstofum.
Rök ráðuneytisins fyrir því að auglýsa ekki stöður sendiherra eru sögð vera sú að starfsmenn utanríkisþjónustunnar séu flutningsskyldir og því sé framgangur þeirra í starfi ólíkur því sem gerðist hjá öðrum opinberum stofnunum.