Í gær lagði Oddný G. Harðardóttir þingflokksformaður Samfylkingarinnar fram skýrslubeiðni þar sem kallað er eftir því að Ríkisendurskoðun leggi mat á starfsemi Fiskistofu og hvort stofnunin nái að sinna lögbundnu hlutverki sínu. Flutningsmenn skýrslubeiðninnar eru ásamt Oddnýju, þingmenn Samfylkingarinnar og þrír þingmenn Pírata, Helgi Hrafn Gunnarsson, Smári McCarthy og Björn Leví Gunnarsson.
Þann 21. nóvember síðast liðinn komu fram í fréttaskýringaþættinum Kveik á RÚV ábendingar um að Fiskistofu tækist ekki að uppfylla skyldur sínar lögum samkvæmt, en stofnunin sinnir m.a. eftirliti með fiskveiðum. Fullyrt hefur verið að fyrir liggi vísbendingar um brot a.m.k. gegn lögum um umgengni um nytjastofna sjávar, sem feli í sér annars vegar brottkast afla og hins vegar ranga vigtun afla. Einnig kom fram að atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, sem fer með málefni sjávarútvegs, ætti að vera kunnugt um framangreint.
Í skýrslunni skulu koma fram svör við eftirfarandi spurningum:
og rannsókn og eftirfylgni brotamála.
og rannsókn og eftirfylgni brotamála.
verið fjöldi starfsmanna á sama tímabili greindur eftir starfsheitum.
Skýrslunni verði skilað til Alþingis fyrir 1. júní 2018.
Flutningsmenn telja brýnt að gerð verði úttekt á málinu enda verður að telja brot á þessu sviði mjög alvarleg. Ekki verði við það unað að til séu hvatar í kerfinu til að fara fram hjá reglum, sérstaklega ekki fyrir fiskveiðiþjóð sem stæri sig af ábyrgum og sjálfbærum veiðum.
Skýrslubeiðnina má lesa í heild sinni hér: http://www.althingi.is/altext/148/s/0461.html