Á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í dag lagði Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, óháður borgarfulltrúi, fram tillögu um að snjallsímar verði bannaðir í grunnskólum borgarinnar í skólatíma. Tillagan hlaut ekki brautgengi í borgarstjórnar.
Í máli Sveinbjargar kom fram að stöðugt fjölgi rannsóknum sem sýna fram á skaðleg áhrif snjallsíma á skólastarf og árangur og félagslega færni nemenda. Vegna þessa hafi fjölmörg ríki nú ákveðið að banna alla símanotkun á fyrstu skólastigunum.
Bretar voru á meðal hinna fyrstu og er símanotkun nemenda nú óheimili í langflestum barnaskólum þar. Þá hafa Frakkar nú ákveðið að banna símanotkun á fyrstu skólastigum, fram til 15 ára aldurs. Sömu sögu er að segja frá Norðurlöndunum þar sem stöðugt fjölgar þeim skólum sem banna nemendum að nota síma meðan þeir eru í skólanum.
„Hér á landi hefur afar takmörkuð umræða farið fram um símanotkun nemenda þrátt fyrir að rannsóknir staðfesti skaðleg áhrif slíkrar notkunar á skólastarf og árangur og félagslega færni nemenda.
Við þetta bætist síðan rannsóknir sem sýna fram á mjög mikla fylgni milli noktun nemenda á samfélagsmiðlun og aukins þunglyndis og kvíða og einangrunar þeirra á meðal. Er miður að borgaryfirvöld neiti að taka frumkvæði í þessu máli, fylgja erlendum fordæmum og láta augljósa hagsmuni barna ráða ferðinni,”
sagði Sveinbjörg.
Margir borgarfulltrúar fögnuðu umræðunni um snjallsíma í skólum, en fæstir vildu ganga svo langt að banna þá alfarið. Var frekar lagt til að foreldrar og kennarar settu reglur um notkun þeirra og þeim kennt að nota símtækin á skynsamlegan hátt.