Pawel Bartoszek, sem skipar 2. sæti framboðslista Viðreisnar í komandi borgarstjórnarkosningum, skrifar pistil í Fréttablaðið í dag, hvar hann býsnast yfir því veseni sem fylgir því að losa sig við jólatré í janúar mánuði. Pistillinn heitir „Sækjum árans jólatrén“.
Í lok pistilsins segir Pawel:
„Einu sinni gátu Reykvíkingar sett tréð út á lóðarmörk og það var sótt. Satt að segja virkaði það þægilegra, skilvirkara og umhverfisvænna en núverandi fyrirkomulag. Eigum við ekki bara að fara að gera þetta aftur?“
Reykjavíkurborg hefur ekki sótt og fargað jólatrjám síðan um jólin 2008 en Sorpa tekur ekki gjald fyrir förgun þeirra.
Nokkur umræða hefur skapast um málið á Twitter í dag.
Sjónvarpsmaðurinn og fyrrum borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Gísli Marteinn Baldursson, gerir athugasemd við pistil Pawels og segir:
„Alltaf jafn furðulegt þegar allt snýst við. Skil ekkert af hverju Pawel vill að borgin byrji aftur að sinna þessu. Og Katrín sýnir að hún ætlar sem betur fer ekki að marsera flokkslínuna, sem var sú að það væri fráleitt hjá borginni að leyfa einkaaðilum að sjá um þetta.“
Katrín þessi er Atladóttir, sem er í 6. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins, en hún sagðist glöð borga íþróttafélaginu í hverfinu fyrir að sækja tréð, sem sé fín fjáröflun fyrir félögin.
Aðrir nefna einnig að það sé ákjósanlegt, því það kalli ekki á miðstýringu og aukin borgarútgjöld í umhverfisskyni.
Pawel telur að þar sem æ fleiri keyri með trén í bílum sínum í Sorpu, auki það mengun.
„Ég játa það að rökin fyrir umhverfisvernd vega þyngra í mínum huga en fjáröflun íþróttafélaga. En sem mikill aðdáandi frjáls markaðar þykist ég vita að ef sorphirða væri alfarið einkarekin þá væri þessi þjónusta hluti hennar, annaðhvort innifalin í verði eða auðpantanleg.“
Þá blandar Davíð Þorláksson, fyrrum formaður SUS sér í umræðuna, með athugasemd um Mörtu Guðjónsdóttur, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
„Ekki oft sem maður les grein eftir @pawelbartoszek og þarf að tvítékka hvort maður hafi nokkuð óvart verið að lesa grein eftir Mörtu Guðjónsdóttur.“
Því svarar Pawel:
„Án þess að ég geri lítið úr þeirri nálgun að nota Mörtu Guðjónsdóttur sem öfugan pólitískan áttavita í borgarmálum, þá má sú nálgun ekki byrgja manni stærri sýn. Erum við sannfærð um að kolefnisfótspor hafi minnkað með núverandi fyrirkomulagi?“
https://twitter.com/davidthorlaks/status/978929596396687360
Alltaf jafn furðulegt þegar allt snýst við. Skil ekkert af hverju Pawel vill að borgin byrji aftur að sinna þessu. Og Katrín sýnir að hún ætlar sem betur fer ekki að marsera flokkslínuna, sem var sú að það væri fráleitt hjá borginni að leyfa einkaaðilum að sjá um þetta.
— Gísli Marteinn (@gislimarteinn) March 28, 2018