fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024
Eyjan

Úrskurðarnefnd ógildir framkvæmdaleyfi til Landsnets – „Áfall“ segir bæjarstjóri

Trausti Salvar Kristjánsson
Mánudaginn 26. mars 2018 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Haraldur L. Haraldsson

Í dag ógilti Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála framkvæmdaleyfi sem Hafnarfjarðarkaupstaður gaf út til Landsnets vegna Lyklafellslínu 1. Lagning Lyklafellslínu 1 hefur verið forsenda þess að hægt verði að fjarlægja Hamraneslínur og flytja Ísallínur.  Það voru Hraunavinir og Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands sem kærðu veitingu framkvæmdaleyfisins.

„Úrskurðurinn er áfall fyrir sveitarfélagið og ljóst að áratuga bið eftir því að línurnar hverfi úr Skarðshlíð og Hamranesi styttist ekki við þennan úrskurð. Nú verður Landsnet að svara því með hvaða hætti þeir taka það verkefni áfram en það er ljóst að þetta þolir enga bið og bæjarbúar og bæjaryfirvöld vilja þessar línur burtu. Við eigum fund með þeim í fyrramálið klukkan níu þar sem meðal annars verður farið verður fram á skýr svör um framhaldið,“

sagði Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri Hafnarfjarðarkaupstaðar en Hafnarfjarðarkaupstaður hefur fjárfest í mikilli uppbyggingu á svæðinu ásamt lóðarhöfum á svæðinu en gert er ráð fyrir um 520 íbúðum í Skarðshlíðarhverfinu einu og sér og þar er verið að byggja grunn- leik- og tónlistarskóla ásamt íþróttasal fyrir um fjóra milljarða króna.

 Virðist ógilding framkvæmdaleyfisins fyrst og fremst vera byggð á þeirri forsendu að ekki sé sýnt fram á að jarðstrengskostir séu ekki raunhæfir og samanburður á umhverfisáhrifum þeirra og aðal valkosts hafi ekki farið fram með þeim hætti sem lög gera ráð fyrir. Línan hefur verið á framkvæmdaáætlun kerfisáætlunar 2015-2024 og því samþykkt af Orkustofnun. Framkvæmdin hafði einnig farið í gegnum mat á umhverfisáhrifum.

 „Við förum núna í það að kanna stöðu sveitarfélagsins í þessu máli og næstu skref en þetta eru ekki þær fréttir sem við hefðum vonað að fá frá úrskurðarnefndinni. Um leið og við hörmum þetta erum við ekki að gera lítið úr áhyggjum kærenda, “

segir Haraldur ennfremur.

Eins og áður hefur komið fram hefur barátta bæjaryfirvalda í Hafnarfirði fyrir því að Hamraneslínur verði fluttar úr byggð innan sveitarfélagsins staðið lengi yfir. Árið 2009 var undirritaður samningur milli Landsnets og Hafnarfjarðarkaupstaðar. Í Þeim samningi var gert ráð fyrir flutningi á Hamraneslínu í þremur áföngum sem átti að hefjast árið 2011 og verklok í síðasta lagi árið 2017. Þann 25. október 2012 var ljóst að þetta myndi ekki ganga eftir og var því  undirritaður viðauki milli Landsnets og Hafnarfjarðarkaupstaðar þar sem kom fram að niðurrif Hamraneslína og færsla átti að hefjast eigi síðar en 2016 og ljúka eigi síðar en 2020

„Það var svo í upphafi þessa kjörtímabils, sem undirritaður var nýr samningur á milli Hafnarfjarðarkaupstaðar og Landsnets þar sem við töldum að of langt væri að bíða til ársins 2020 að línurnar færu,“

segir Haraldur. Í samningnum segir í annarri grein  að rífa eigi Hamraneslínu fyrir árslok 2018.  Ljóst er að miðað við þennan úrskurð mun þetta ekki ganga eftir.

„ Frá því að nýr samningur var undirritaður árið 2015 hafa bæjaryfirvöld barist fyrir því að staðið væri við samninginn og framkvæmdir hæfust.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur