Velferðarráðuneytið hefur birt upplýsingar um hluföll kynjanna í þeim nefndum sem skipaðar voru á vegum velferðarráðherra á síðasta ári. Þar kemur í ljós að nokkuð hallar á karlmenn, en hlutföllin eru 60,7% konur og 39,3% karlar á síðasta ári. Samkvæmt lögum skal hlutur kynjanna vera sem jafnastur og hluti hvors kyns má ekki fara undir 40% ef nefndarmenn eru fleiri en þrír.
Heildarhlutfall karla í nýjum nefndum hefur farið úr 49,8 prósentum niður í 39,3 prósent frá árinu 2011, meðan hlutur kvenna hefur aukist á sama tíma, úr 50,2 prósentum í 60,7 prósent. Í fyrra voru skipaðar 99 konur en 64 karlar.
Á heimasíðu ráðuneytisins segir:
„Velferðarráðuneytið birtir hér með upplýsingar um hlutföll kynjanna í nefndum sem skipaðar eru á vegum ráðherra velferðarráðuneytisins, líkt og skylt er samkvæmt jafnréttislögum. Hlutfall kvenna var 60,7% og karla 39,3% í nefndum ráðuneytisins sem skipaðar voru á síðasta ári.
Í 15. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla er kveðið á um skipun í nefndir, ráð og stjórnir á vegum hins opinbera. Samkvæmt lögunum skal hlutur kynjanna vera sem jafnastur og hluti hvors kyns ekki minni en 40% þegar fulltrúar í nefnd eru fleiri en þrír.
Ef hlutföll kynjanna í nefndum velferðarráðuneytisins eru skoðuð eftir tilnefningum hvors ráðherra um sig eru hlutföllin utan lögbundinna marka í nefndum félags- og jafnréttismálaráðherra, 38% karlar á móti 62% kvenna en innan marka í nefndum heilbrigðisráðherra, 41% karlar á móti 59% kvenna.
Á töflunni hér að neðan má sjá hlutföll kynja í nefndum sem skipaðar hafa verið af hálfu ráðherra velferðarráðuneytisins á árunum 2011 – 2017.“
Ár | Konur | Karlar | Heild | Hlutfall kvenna |
Hlutfall karla |
---|---|---|---|---|---|
2011 | 137 | 136 | 273 | 50,2% | 49,8% |
2012 | 104 | 97 | 201 | 51,7% | 48,3% |
2013 | 141 | 124 | 265 | 53,2% | 46,8% |
2014 | 162 | 145 | 307 | 52,8% | 47,2% |
2015 | 96 | 92 | 188 | 51,1% | 48,9% |
2016 | 109 | 94 | 203 | 53,7% | 46,3% |
2017 | 99 | 64 | 163 | 60,7% | 39,3% |
Ár | Konur | Karlar | Heild | Hlutfall kvenna |
Hlutfall karla |
---|---|---|---|---|---|
2011 | 405 | 379 | 784 | 51,7% | 48,3% |
2012 | 419 | 391 | 810 | 51,7% | 48,3% |
2013 | 421 | 401 | 822 | 51,2% | 48,8% |
2014 | 471 | 426 | 897 | 52,5% | 47,5% |
2015 | 492 | 439 | 931 | 52,8% | 47,2% |
2016 | 444 | 391 | 835 | 53,2% | 46,8% |
2017 | 386 | 301 | 687 | 56,2% | 43,8% |