fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024
Eyjan

Ágúst Ólafur: Fjármálastefna ríkisstjórnarinnar fær falleinkun flestra hagsmunaaðila

Trausti Salvar Kristjánsson
Þriðjudaginn 20. mars 2018 18:08

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ágúst Ólafur Ágústsson

„Fjármálastefna ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur fær algjöra falleinkunn frá nánast öllum hagsmunaaðilum sem fjallað hafa um stefnuna. Fjármálastefnan er sögð vera ógn við stöðugleikann, óraunsæ, ábyrgðarlaus, óvarfærin, ómarkviss, óljós, ósjálfbær, óskýr, ógagnsæ, aðhaldslítil, varasöm og ótrúverðug.“

Svona hefst álit Ágústs Ólafs Ágústssonar þingmanns og fulltrúa Samfylkingarinnar í fjárlaganefnd á fjármálastefnu 2018-2022 sem verður rædd á Alþingi í dag, samkvæmt tilkynningu.

Í nefndaráliti sínu rifjar hann m.a. upp þung orð sem forsætisráherra og þingmenn Vinstri grænna höfðu um fjármálastefnu síðustu ríkisstjórnar. Stefnunni sem Samtök atvinnulífsins segja keimlíka þeirri sem nú er lögð fram.

 Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar segir fjármálastefnuna koma niður á bæði efnahagslegum og félagslegum stöðugleika:

 „Það er ekki hægt að fjalla um fjármálastefnuna, án þess að setja hana í samhengi við getuleysi ríkisstjórnarinnar til að afla tekna og þá eftirgjöf tekna sem varð í síðustu fjárlögunum. Það blasir við að ekki verður hægt að takast á við brýnustu verkefni samtímans hér á landi eða axla ábyrgð á alþjóðavettvangi, öll áherslan er á skattalækkanir. Slíkt kemur niður á efnahagslegum stöðugleika. Félagslegi stöðugleikinn sem við í Samfylkingunni og Vinstri græn töluðum um í kosningabaráttunni síðasta haust er í órafjarlægð.

 Afleiðingarnar þekkjum við allt of vel: enn hærri vextir og yfirvofandi verðbólga. Launafólk og fátækir munu enn einu sinni sitja eftir með sárt ennið. Aðgerðir ríkisstjórnar sem miða að betri lífsafkomu fólks munu fyrst og fremst nýtast þeim tekjuhærri og eignameiri. Óróleiki á vinnumarkaði eróumflýjanlegur.­“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Ríkisútvarpið telst trauðla menningarstofnun

Björn Jón skrifar: Ríkisútvarpið telst trauðla menningarstofnun
Eyjan
Fyrir 1 viku

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Dagfari: Látum ekki koma fram við okkur eins og búfénað – eini ómöguleikinn er þegar þingið hlýðir ekki þjóðinni

Dagfari: Látum ekki koma fram við okkur eins og búfénað – eini ómöguleikinn er þegar þingið hlýðir ekki þjóðinni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur hæðist að Sigmundi og upphlaupi hans í gær – „Það má brosa að því þegar formaðurinn baunar“

Hildur hæðist að Sigmundi og upphlaupi hans í gær – „Það má brosa að því þegar formaðurinn baunar“