fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Eyjan

Varla átakamikill landsfundur

Egill Helgason
Föstudaginn 16. mars 2018 11:31

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefst í dag. Þetta eru stórar og miklar samkomur, landsfundarfulltrúar koma alls staðar að af landinu, enginn stjórnmálaflokkur á Íslandi getur fyllt Laugardalshöllina eða sett á svið viðlíka sýningu.

Þetta verður varla fundur mikilla átaka. Nýr varaformaður verður kosinn, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir. Það er orðin hefð í flokknum að hafa karl sem formann en konu sem er frekar á uppleið sem varaformann. Hingað til hefur konan samt ekki náð formannssætinu sjálfu.

Það er heldur ekki búist við því að einhver sérstök mál valdi átökum. Eftir tvennar kosningar á einu ári eru Sjálfstæðismenn tiltölulega sáttir við stjórnarsamstarfið við VG og Framsóknarflokkinn – að minnsta kosti finnst þeim ekki að nú sé tími til að rugga bátnum. En það vita þeir sem hafa komið nærri landsfundum að innan málefnanefnda er unnið heilmikið starf og stundum hart tekist á.

Það  sem vekur helst athygli í dagskránni er að Eyþór Arnalds, borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins, ávarpar landsfundinn á besta tíma, klukkan 13.45 á sunnudaginn, á sama tíma og kosning formanns og varaformanns stendur yfir. Flokkurinn þráir heitt að komast aftur til valda í Reykjavík. Eyþóri veitir kannski ekki af því heldur að fá smá vind í bakið, því skoðanakönnunins sem birtist í Viðskiptablaðinu í gær mældi Samfylkinguna stærsta í Reykjavík og að núverandi meirihluti héldi nokkuð örugglega.

Hér er svo auglýsing um landsfundinn sem birtist í Morgunblaðinu í dag.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur