fbpx
Fimmtudagur 18.júlí 2024
Eyjan

Rafrettufrumvarp í mótsögn við sjálft sig – Krefst nikótínaðvarana á nikótínslausum rafrettum

Trausti Salvar Kristjánsson
Fimmtudaginn 15. mars 2018 14:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra

Í rafrettufrumvarpi Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra, er að  finna meinlega mótsögn. Á einum stað segir að lögin eigi að ná yfir rafrettur, hvort sem þær innihaldi nikótín eða ekki. Á öðrum stað segir að aðeins megi selja rafrettur sem merktar eru viðvörunum um áhrif vörunnar á heilsu fólks.

Með öðrum orðum, nikótínslausar rafrettur verða merktar viðvörunarmiða um að varan sé skaðleg, þar sem hún innihaldi nikótín, gangi frumvarpið í gegn.

Í frumvarpinu segir:

2. gr.
Gildissvið.

Lög þessi gilda um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur, hvort sem þær innihalda nikótín eða ekki.
4. gr.
Viðvaranir á umbúðum.

Rafrettur og áfyllingar má því aðeins hafa til sölu eða dreifingar ef skráðar eru viðvaranir um áhrif vörunnar á heilsu á umbúðir hennar og leiðbeiningar fylgi um notkun og geymslu.

 

Á þessa mótsögn bendir Félag atvinnurekenda í tilkynningu um umsögn sína við frumvarpið, þar sem það er gagnrýnt harðlega:

„Frumvarp Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um rafrettur gengur enn lengra en frumvarp forvera hennar, Óttarrs Proppé, að því leyti að það gerir ráð fyrir takmörkunum á notkun rafrettna og viðskiptum með þær, hvort sem þær innihalda nikótín eða ekki. Afleiðingarar eru skringilegar, þannig virðast ákvæði frumvarpsins þýða að setja verði á nikótínlausar rafrettur merkingar um að þær innihaldi nikótín!

Þetta er á meðal þeirra mörgu atriða í frumvarpinu sem Félag atvinnurekenda gagnrýnir í umsögn sinni til Alþingis. FA bendir á að fjölmörg ákvæði frumvarpsins ganga lengra en Evróputilskipunin, sem því er ætlað að innleiða, án þess að rökstutt sé hvers vegna nauðsynlegt sé að ganga lengra í inngripum í viðskipta- og athafnafrelsi fólks. Þar á meðal eru ákvæðin um bann við sýnileika rafrettna í verslunum, ákvæði um takmarkanir á notkun þeirra sem leggja rafrettur að öllu leyti að jöfnu við sígarettur og áðurnefnd ákvæði um að lögin taki einnig til rafrettna sem innihalda ekki nikótín.

Órökstudd víkkun á gildissviðinu
Hvað varðar ákvæðin um að lögin nái til rafrettna án nikótíns, bendir FA á að sú breyting frá fyrra frumvarpi og ákvæðum Evróputilskipunarinnar er ekki rökstudd með neinum hætti. Þetta skapi ýmis vandkvæði. Til dæmis séu takmarkanir á stærð áfyllinga af nikótínvökva látnar gilda líka um nikótínlausan rafrettuvökva, en hann er almennt seldur í mun stærri umbúðum en nikótínvökvi. „Það liggur í augum uppi að strangari reglur hér á landi en annars staðar skapa verulegt óhagræði fyrir söluaðila rafrettna og neytendur. Þá má jafnframt benda á umhverfisleg áhrif þessa, en vökvinn er alla jafna í plastflöskum. Þannig myndu 10 stykki af 10 ml plastflöskum falla til í stað einnar 100 ml flösku,“ segir í umsögninni.

 

Önnur tveggja viðvarana sem tilskipun Evrópusambandsins kveður á um.

Vegna þess að Evróputilskipunin nær eingöngu til rafrettna með nikótíni, gerir hún eingöngu ráð fyrir að varúðarmerkingar á vörunni vari við því að hún innihaldi nikótín.

„Vandséð er af hverju takmarka á notkun nikótínlausra rafrettna með sama hætti og notkun rafrettna með ávanabindandi efninu nikótíni. Það er fortakslaus krafa af hálfu FA að stjórnvöld rökstyðji íþyngjandi kröfur sem settar eru á atvinnulífið með fullnægjandi hætti; af hverju þær eru nauðsynlegar, hverju á að ná fram með þeim og af hverju þörf er á því að ganga lengra en tilskipunin mælir fyrir um,“

segir í umsögn FA.

 

 

Hömlur styrkja stöðu sígarettunnar

Líkt og í umsögn sinni um fyrra rafrettufrumvarpið, vekur FA athygli á því að rafrettur geti verið mikilvægt tæki til að hjálpa fólki að hætta að reykja, enda langtum minna hættulegar en sígarettur. „Erfitt er að sjá hvernig neytandi á að fá vitneskju um og frekari upplýsingar um rafsígarettur þegar bæði auglýsinga- og sýnileikabann gilda um vöruna,“ segir í umsögn FA.  „Hægt er að taka undir það að gæta beri að því að varan sé aðallega notuð í þeim tilgangi að hætta að reykja. Hins vegar verður reykingafólk að geta fengið upplýsingar um vöruna svo það a.m.k. íhugi að skipta yfir í skaðlausari vöru en sígarettuna. Aukin neysla rafrettna hlýtur að teljast jákvæð ef hún orsakast af minni neyslu sígarettna.“

FA bendir á að undanfarin ár hafa ýmsar skaðaminnkandi tóbaks- og nikótínvörur, sem stuðlað geta að því að draga úr reykingum, komið á markað. „Eigi að vera hægt að útskýra fyrir neytendum hvernig þær virka, hvers vegna þær fela í sér minni skaða og hvernig á að nota þær, krefst það þess að hægt sé að sýna og fjalla um vöruna. Allir vita hins vegar hvernig á að nota sígarettu. Sú takmörkun á aðgengi og upplýsingum um rafsígarettur sem frumvarpið felur í sér styður þess vegna við sterka stöðu sígarettunnar á markaði; vörunnar sem óumdeilt er sú skaðlegasta í hópi tóbaks og tengdra vara.“

Umsögn FA um rafrettufrumvarpið

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Ríkisútvarpið telst trauðla menningarstofnun

Björn Jón skrifar: Ríkisútvarpið telst trauðla menningarstofnun
Eyjan
Fyrir 1 viku

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Dagfari: Látum ekki koma fram við okkur eins og búfénað – eini ómöguleikinn er þegar þingið hlýðir ekki þjóðinni

Dagfari: Látum ekki koma fram við okkur eins og búfénað – eini ómöguleikinn er þegar þingið hlýðir ekki þjóðinni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur hæðist að Sigmundi og upphlaupi hans í gær – „Það má brosa að því þegar formaðurinn baunar“

Hildur hæðist að Sigmundi og upphlaupi hans í gær – „Það má brosa að því þegar formaðurinn baunar“