Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur úthlutað styrkjum af safnliðum fyrir árið 2018 til verkefna er stuðla að faglegri uppbyggingu á sviði menningarmála. Í auglýsingu ráðuneytisins 29. september 2017 var tekið fram að úthlutað yrði styrkjum á sviði lista og menningararfs annars vegar og til mannvirkja á sviði íþrótta- og æskulýðsmála hinsvegar. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Hæsta styrkinn hlýtur Landssamband hestafélaga vegna uppbyggingar í Víðidal vegna Landsmóts hestamanna og Sveitafélagið Skagafjörður, vegna Landsmóta UMFÍ, eða sex milljónir hvort verkefni. Sveitafélagið Ölfus fær fimm milljónir vegna fyrirhugaðs Unglingalandsmóts.
Harpa fær hálfa milljón fyrir Upptaktinn, tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna og KrakkaRÚV fær eina og hálfa milljón fyrir „gagnvirkt vefsjónvarp fyrir ungmenni með áherslu á vandað málfar og góða íslensku.“
Heildarlistann má sjá hér að neðan.
Á sviði lista og menningararfs eru veittir rekstrar- og verkefnastyrkir til félaga, samtaka og einstaklinga sem starfa á sviði lista og að verndun menningarminja og hafa ekki aðgang að uppbyggingarsjóðum landshluta eða öðrum sjóðum lista og menningararfs.
Á sviði íþrótta- og æskulýðsmála eru veittir stofnstyrkir til að styðja við uppbyggingu, endurnýjun og viðhald íþróttamannvirkja og mannvirkja fyrir æskulýðsstarfsemi í samstarfi við sveitarfélög og fleiri aðila.
Mat á umsóknum byggði einkum á eftirtöldum sjónarmiðum:
a) gildi og mikilvægi verkefnis fyrir stefnu viðkomandi málaflokks,
b) gildi og mikilvægi verkefnisins fyrir kynningu og markaðssetningu viðkomandi málaflokks,
c) að umsækjanda takist að ná þeim markmiðum sem verkefnið miðar að,
d) starfsferli og faglegum bakgrunni umsækjanda og annarra þátttakenda,
e) fjárhagsgrundvelli verkefnis og/eða hvort umsækjandi hafi hlotið aðra styrki til sama verkefnis.
Alls bárust 97 umsóknir þar sem sótt var um styrki alls að fjárhæð 429.437.312 kr. Alls eru veittir 37 styrkir að þessu sinni, samtals að fjárhæð 56.300.000 kr.
Eftirfarandi umsækjendur og verkefni hlutu styrki fyrir árið 2018:
Styrkir til lista og menningararfs
Verkefnastyrkir
Umsækjandi | Verkefni |
Úthlutað
|
ASSITEJ Ísland | UNGI – alþjóðleg sviðslistahátíð fyrir ungt fólk |
800.000
|
Barnabókasetur Íslands | Siljan, myndbandasamkeppni fyrir ungt fólk |
500.000
|
Cycle Music and Art Festival | Listahátíðin Cycle, Heimur heima |
1.000.000
|
Danshópurinn Sporið | Miðlun íslenskra þjóðdansa sem menningarhefðar |
300.000
|
Félag norrænna forvarða -Ísland | Alþjóðleg ráðstefna á Íslandi |
500.000
|
Félag um listasafn Samúels | Endurbætur á húsi Samúels |
500.000
|
Fífilbrekka ehf | Ljósmyndaverkefni um hús Samvinnuhreyfingarinnar |
1.000.000
|
Harpa ohf | Upptakturinn, tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna |
500.000
|
Íslandsdeild ICOMOS | Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi |
500.000
|
Íslenskir eldsmiðir | Fræðsla um eldsmíði – námskeið og sýningar |
500.000
|
Íslensk tónverkamiðstöð | Skylduskil til Landsbókasafns Íslands |
2.000.000
|
KrakkaRÚV | Gagnvirkt vefsjónvarp fyrir ungmenni með áherslu á vandað málfar og góða íslensku |
1.500.000
|
Leikminjasafn Íslands | Frágangur og skráning leikmuna |
3.700.000
|
Mýrin – félag um barnabókmenntahátíð | Úti í Mýri – alþjóðleg barnabókmenntahátíð |
1.000.000
|
Nína Margrét Grímsdóttir | Reykjavík Classics, tónleikaröð í Hörpu |
1.200.000
|
Norræna húsið í Reykjavík | Menningarveisla í Vatnsmýrinni í tilefni af 50 ára afmæli hússins 2018 |
800.000
|
SÍUNG | SÖGUR – verðlaunahátíð barnanna |
500.000
|
Sviðslistasamband Íslands | Markaðs og kynningarmál |
500.000
|
Tónskáldafélag Íslands | Myrkir músíkdagar |
2.000.000
|
Upplýsing, félag bókasafns- og upplýsingafræða | Faglegir fundir, fræðsla og alþjóðlegt samstarf |
1.200.000
|
Valdimar Össurarson | Orðasjóður Kollsvíkinga |
500.000
|
Rekstrarstyrkir
Bandalag sjálfstæðra leikhúsa |
3.500.000
|
Bókmenntahátíð í Reykjavík |
3.000.000
|
Félag íslenskra safna og safnmanna |
1.500.000
|
Reykjavík Dance Festival |
3.500.000
|
Stofnstyrkir til íþrótta- og æskulýðsmála
Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar | Úrbætur á öryggissvæði keppnisbrautar |
800.000
|
Golfklúbbur Vestmannaeyja | Framkvæmdir á mótssvæði fyrir Íslandsmót í höggleik 2018 |
2.000.000
|
Landssamband hestamannafélaga | Uppbygging keppnisvalla í Víðidal fyrir Landsmót hestamanna 2018 |
6.000.000
|
Skáksamband Íslands | Viðgerð á þaki vegna leka í húsakynnum sambandsins |
1.000.000
|
Skátafélagið Garðbúar | Viðgerðir og endurbætur á húsakynnum skátaheimilisins |
350.000
|
Skátafélagið Heiðabúar | Viðgerðir og endurbætur á húsakynnum skátaheimilisins |
350.000
|
Skátafélagið Mosverjar | Viðgerðir og endurbætur á húsakynnum skátaheimilisins |
350.000
|
Skátafélagið Strókur | Viðgerðir og endurbætur á húsakynnum skátaheimilisins |
350.000
|
Skógarmenn KFUM – Vatnaskógi | Vatnaskógur – ljúka við nýtt hús og bætt aðgengi |
1.000.000
|
Sveitarfélagið Skagafjörður | Uppbygging mannvirkja fyrir Landsmót UMFÍ og Landsmót UMFÍ 50+ 2018 |
6.000.000
|
Sveitarfélagið Ölfus | Unglingalandsmót UMFÍ 2018 |
5.000.000
|
Vegahúsið ungmennahús | Viðhald Vegahússins ungmennahúss |
600.000
|