Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur skipað í samráðshóp um endurskoðun búvörusamninga. Við afgreiðslu búvörusamninganna árið 2016 var lagt upp með að skipaður yrði sjö manna samráðshópur en í tíð tveggja síðustu ríkisstjórna hefur fulltrúum fjölgað í annars vegar 12 og hins vegar 13. Hinn 30. desember sl. ákvað sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að endurskipa í hópinn enda rétt að vinna hópsins taki m.a. mið af þeim áherslum sem fram koma í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur.
Alls eiga nú átta fulltrúar sæti í hópnum og fara tveir þeirra sameiginlega með formennsku. Samráðshóp um endurskoðun búvörusamninga skipa:
Starfshópnum hefur verður sett erindisbréf sem tekur mið af þeim umræðum sem fram fóru á Alþingi þegar gildandi búvörulög voru samþykkt og þeim áherslum sem fram koma í stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar. Lögð verður áhersla á að hópurinn ljúki störfum sem fyrst og eigi síðar en í lok árs 2018.
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra: „Við skipan hópsins hef ég lagt ríka áherslu á að veita sjónarmiðum neytenda aukna vigt við endurskoðun búrvörusamninganna, m.a. með því að skipa fulltrúa Neytendasamtakanna sem annan formanna hópsins. Þessi fjölbreytti hópur hefur fulla burði til að ná víðtæku samkomulagi um tillögur sem geta orðið grundvöllur að öflugum atvinnurekstri í landbúnaði og ekki síður skapað meiri sátt um uppbyggingu íslensks landbúnaðar.“