fbpx
Mánudagur 19.ágúst 2024
Eyjan

Heiða Björg vill varaformannssætið áfram

Trausti Salvar Kristjánsson
Mánudaginn 26. febrúar 2018 11:12

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi og varaformaður Samfylkingarinnar

Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi og varaformaður Samfylkingarinnar, hefur gefið kost á sér til áframhaldandi setu sem varaformaður flokksins, en kosning þar um fer fram á landsfundi Samfylkingarinnar 2.-3. mars næstkomandi.

 

Engin önnur framboð eru þó staðfest og Heiða því sjálfkjörin eins og sakir standa, en framboðsfrestur rennur út á landsfundinum sjálfum.

 

Heiða segist Facebook síðu sinni vera þakklát fyrir þann tíma og það samstarf sem hún hefur átt og segist bjartsýn á framhaldið:

 

„En framundan eru einnig afar spennandi tímar; áframhaldandi uppbygging Samfylkingarinnar undir forystu Loga Einarssonar, sem lifandi hreyfingar jafnaðarfólks á Íslandi og mikilvægar sveitarstjórnarkosningar, þar sem jafnaðarfólk verður að sækja fram um allt land.

Ég er full bjartsýni á framhaldið og ég veit að hreyfing jafnaðarfólks á mikil sóknarfæri. Ég vill leggja mitt af mörkum til að við nýtum þau færi og óska því eftir áframhaldandi umboði sem varaformaður Samfylkingarinnar á komandi landsfundi.“

Kæru félagar og vinir.

Ég hef ákveðið að gefa kost á mér til áframhaldandi starfa sem varaformaður Samfylkingarinnar, á landsfundi flokksins sem haldinn verður í lok þessarar viku.

Ég hef verið varaformaður Samfylkingarinnar í liðlega eitt ár og á þeim tíma hefur sannarlega gengið á ýmsu, bæði í íslenskum stjórnmálum og hjá flokknum okkar. Þetta hefur verið krefjandi tími, en afar gefandi, enda sjaldan skemmtilegra í stjórnmálum, en þegar samstaða og eindrægni rikir, árangur starfsins verður sýnilegur og hreyfingin eflist.

Ég er afar þakklát fyrir þennann tíma og það góða samstarf sem ég hef átt við Samfylkingarfólk um allt land og samverkafólk í forystu flokksins. Við eigum mikinn mannauð í Samfylkingunni.

En framundan eru einnig afar spennandi tímar; áframhaldandi uppbygging Samfylkingarinnar undir forystu Loga Einarssonar, sem lifandi hreyfingar jafnaðarfólks á Íslandi og mikilvægar sveitarstjórnarkosningar, þar sem jafnaðarfólk verður að sækja fram um allt land.

Ég er full bjartsýni á framhaldið og ég veit að hreyfing jafnaðarfólks á mikil sóknarfæri. Ég vill leggja mitt af mörkum til að við nýtum þau færi og óska því eftir áframhaldandi umboði sem varaformaður Samfylkingarinnar á komandi landsfundi.

Sjáumst sem flest á landsfundi – frelsi, jafnrétti, samstaða!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Hvað á að gera við skakka heildarmynd?

Þorsteinn Pálsson skrifar: Hvað á að gera við skakka heildarmynd?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólga vegna gjaldskráa á Akureyri – „Ef þeir taka ekki þátt í þessu gefur það auga leið að samningar munu losna“

Ólga vegna gjaldskráa á Akureyri – „Ef þeir taka ekki þátt í þessu gefur það auga leið að samningar munu losna“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Mörg ríki hanga milli vonar og ótta á húninum í Brussel

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Mörg ríki hanga milli vonar og ótta á húninum í Brussel
Eyjan
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Ekki nefna vextina!

Thomas Möller skrifar: Ekki nefna vextina!
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór sýnir myndir sem slá vopnin úr höndum ráðherra – „Eignarhald kennir ekki virðingu“

Ragnar Þór sýnir myndir sem slá vopnin úr höndum ráðherra – „Eignarhald kennir ekki virðingu“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Grátandi ferðaþjónusta

Óttar Guðmundsson skrifar: Grátandi ferðaþjónusta