Íbúasamtök Kjalarness í samvinnu við Hverfisráð Kjalarness, bæjar- og sveitarstjórnir Kjósarhrepps, Hvalfjarðarsveitar, Skorradalshepps, Akraneskaupstaðar og Borgarbyggðar, boða til fundar um uppbyggingu á Vesturlandsvegi um Kjalarnes til að tryggja öryggi vegfarenda. Fundinn verður 22. febrúar kl. 17:30 í Fólkvangi á Kjalarnesi. Um er að ræða opinn fund íbúa svæðisins.
Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Dagur B. Eggertsson Borgarstjóri Reykavíkur munu sækja fundinn auk þingmanna Reykjavíkur og Norðurlands vestra sem og borgar- bæjar- og sveitastjórnarmanna.
Frummælendur verða:
Eldey Huld Jónsdóttir Hverfisráði Kjalarness
Geirlaug Jóhannsdóttir 1. varaforseti sveitastjórnar Borgarbyggðar
Jónas Snæbjörsson Framkvæmdastjóri Þróunarsviðs Vegagerðarinnar.
Guðný G. Ívarsdóttir, sveitarstjóri Kjósahrepps.
Fundarstjóri verður: Ingibjörg Þ. Sigurþórsdóttir
Öllum sem aka um veturlandsveg á Kjalarnesi er ljóst hvers hættulegur hann er. Ástand vegarins er nú með þeim ósköpum að hann líkist meira samsíða skurðum er greiðfærum vegi. Daglega verðum við vitni að því að bílstjórar lenda í vanda við að halda bifreið inni á veginum og þegar ófærð, rigning og hálka bætast við, undrar engan þegar þar verða bílveltur og önnur alvarleg slys. Það er ekki aðeins ástand vegarins sem er hættulegt heldur er það staðreynd að fjöldinn allur af þverunum á þennan þjóðveg skapa gríðarlega hættur. Þó vegagerðin hafi reynt að plástra á þennan vanda með því að gera útskot eru þau bæði of fá og of lítil og því miður meira og minna teft af ferðamönnum sem halda að þau séu útsýnis- og mynda stoppustöðvar.
Þegar hafa verið unnin drög að skipulagi á öruggum vegi en til þess að hann geti orðið að veruleika þarf Ríkisstjórn Íslands að tryggja fjárveitingu til frekara skipulags og framkvæmda.
Fundinum er ætlað að sýna ráðamönnum fram á að ekki má lengur láta undir höfuð leggjast að bæta hér úr. Í núverandi fjárlögum er ekki gert ráð fyrir þessum endurbótum utan hringtorgs á Álfsnesmelum.
Um og yfir 7000 bílar aka um þennan veg daglega nú að vetrarlagi. Þar af fjöldinn allur af gríðarstórum flutningabílum. Ljóst má vera að enn mun fjölga slíkum bílum og erum við að sjá smjörþefinn af afleiðingu þess á Álfsnesmelum þar sem Vegagerðin er búin að færa hámarkshraðann niður í 70 km/kl. Vegfarendur koma vart til með að fagna því að sami hámarkshraði verði settur á veginn milli Kollafjarðar og Hvalfjarðargangna, en hætta er á að vegurinn verði metinn óhæfur til hraðari aksturs.
Nú þurfa vegfarendur að sýna samstöðu og fjölmenna á fundinn um Vesturlandsveg 22 .feb. í Fólkvangi á Kjalarnesi (rétt við hliðina á Klébergsskóla).