Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir í pistli í Morgunblaðinu að sexmenningarnir frá Klaustur bar hafi opnað ormagryfju sem enn sé verið að grafa í. Helga Vala nefnir að áður en spurt sé hvort þingmennirnir eigi að segja af sér, þurfi að svara því hvort þeir geti sinnt störfum sínum, en fréttir hafa borist úr þinginu að andrúmsloftið sé ansi óþægilegt fyrir þá sem eiga í hlut og að fáir þeirra sem nefndir eru á nafn í upptökunum hafi áhuga á að starfa með einhverjum sexmenninganna:
„Telja þau sig geta sinnt eftirlitshlutverki gagnvart framkvæmdarvaldinu? Telja þau sæmandi að beina fyrirspurn að menntamálaráðherra á sama tíma og svívirðingar um hana berast frá þeim? Telja þau sæmandi að sitja í fastanefndum Alþingis og taka á móti gestum sem beint eða óbeint máttu þola ýmiss konar níð, vanvirðingu eða beinar svívirðingar af þeirra hálfu? Telja þau samþingmenn sína eiga að þola það að starfa með þeim áfram? Átta þau sig ekki á að þau hafa valdið slíku tjóni hjá saklausu fólki að þau mega búast við að umrætt fólk kæri sig ekki um nein samskipti við þau? Starf þingmannsins er fjölbreytt og þarfnast margvíslegrar aðkomu þess sem starfinu gegnir. Þingmennirnir sex verða að svara því hvort þeir geti geti sinnt því eins og til er ætlast.“
Helga Vala segir að aðeins hafi fengist að heyra ummæli um opinberar persónur, en veltir fyrir sér hvort aðrir hópar hafi orðið fyrir barðinu á sexmenningunum, eins og starfsmenn Alþingis:
„Nú skal tekið fram að enn höfum við bara fengið að heyra ummæli er beindust gegn opinberum persónum en ekki öðrum og því vitum við í raun ekki hvað sexmenningarnir sögðu um annað fólk þetta kvöld. Má þar nefna starfsfólk þingsins sem aðstoðar þingmenn alla daga við gerð þingmála, vinnu í nefndum og veitir hvers kyns stoðþjónustu. Þá vitum við heldur ekki hvaða áhrif þetta hefur á aðra þá sem taka málið til sín, eins og til að mynda þolendur sem greint hafa frá kynferðisofbeldi en upplifa nú vanvirðingu vegna háðungar þingmannanna gagnvart Metoo-byltingunni sem þau virðast telja hið mesta skaðræði.“
Siðanefnd Alþingis hefur verið virkjuð í fyrsta skipti til að sinna hlutverki sínu og hefur kallað eftir upptökunum til að rannsaka málið. Í morgun sögðust þau Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Anna Kolbrún Árnadóttir ekki ætla að segja af sér, en Anna Kolbrún sagðist þó ætla að íhuga stöðu sína ef siðanefnd kæmist að þeirri niðurstöðu að hún hefði brotið siðareglur Alþingis.
Sigmundur Davíð sagðist ekki ætla að íhuga stöðu sína.