Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, hefur áhyggjur af fylgistapi Sjálfstæðisflokksins. Samkvæmt könnun Maskínu er Samfylkingin orðinn stærsti flokkur landsins, með 19,7 prósenta fylgi, ef gengið yrði til kosninga nú. Sjálfstæðisflokkurinn fengi 19,3 prósent.
Sjá nánar: Klaustursflokkarnir ná ekki inn manni – Samfylkingin mælist stærst
Styrmir segir það pólitískt „afrek“ að Sjálfstæðisflokknum hafi tekist að halda sig í ríkisstjórn svo lengi:
„Þegar 10 ár eru liðin frá Hruni er staðfest í kosningum og könnunum, að staða Sjálfstæðisflokksins meðal þjóðarinnar er ekki svipur hjá sjón miðað við það sem áður var. Varanlegt fylgistap virðist vera um þriðjungur að lágmarki. Auðvitað kemur þar líka við sögu klofningur vegna ESB með stofnun Viðreisnar. Miðað við þessar aðstæður er það út af fyrir sig pólitískt afrek að hafa haldið flokknum í ríkisstjórn frá 2013.“
Styrmir vitnar þó til könnunar Fréttablaðsins í gær. Sjálfstæðisflokkurinn mælist þar með 21,4 prósent og kemur Samfylkingin næst með 20,8 prósent.
Styrmir hefur þó litlar áhyggjur af Miðflokknum í bili, sem nær ekki manni inn eftir að Klaustursmálið komst upp. En hann kallar eftir umræðum innan SJálfstæðisflokksins vegna fylgisins:
„Jafnframt sýnir hún að Samfylkingin er að nálgast Sjálfstæðisflokkinn óþægilega í fylgi. Hins vegar eru meiri líkur en minni á því að hættan á samkeppni af hálfu Miðflokksins sé úr sögunni, alla vega í náinni framtíð. Kallar þessi staða ekki á umræður innan Sjálfstæðisflokksins? Er ekki ástæða til að almennir flokksmenn ræði þessa stöðu?“