fbpx
Föstudagur 22.nóvember 2024
Eyjan

Sigmundur tjáir sig um Kastljósviðtalið: Mjög sárt að vera kallaður ofbeldismaður – „Lilja er vinur minn“

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 6. desember 2018 11:34

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, og Lilja Alfreðsdóttir varaformaður Framsóknarflokksins. Samsett mynd/Skjáskot af RÚV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, skrifar um vinskap sinn við Lilju Alfreðsdóttur í dag á Facebook, en framganga Lilju í Kastljósinu í gærkvöldi hefur vakið athygli, þar sem hún kallaði sexmenninganna á Klaustur bar ofbeldismenn, sem ekki hefðu dagskrárvaldið.

Sigmundur viðurkennir að vera klaufalegur í samskiptum, en segist vera vinur Lilju og segir rangt hjá henni að hann hafi ekki haft samband við hana eftir að málið komst í hámæli, hann hafi sent henni skeyti með afsökunarbeiðni.

Þá segist hann hafa verið kallaður öllum illum nöfnun í pólitík, en aldrei hafi hann verið særður eins mikið og með orðum Lilju í gær, um að hann sé ofbeldismaður.

Færslu Sigmundar má lesa í heild sinni hér að neðan:

„Lilju Alfreðsdóttur tók ég eftir á menntaskólaárunum í MR og þótti þá strax mikið til hennar koma en kynntist henni ekki almennilega fyrr en árið 2009 þegar hún reyndist mér vel í formannskjöri í Framsóknarflokknum.

Lilja er klár, hrífandi og dugleg manneskja og hef ég aldrei farið leynt með þá skoðun mína á henni við nokkurn mann. Við unnum náið og vel saman. Eitt af því sem gerði samstarf okkar farsælt er að við erum að mörgu leyti ólík. Hún er skipulögð, ég er það síður, hún hefur afburðagóða samskiptahæfni á meðan ég er heldur feiminn að eðlisfari og í hreinskilni sagt, á köflum klaufalegur í samskiptum.

Það að vera fyrrum forsætisráðherra og formaður flokks á Alþingi gerir engan fullkominn, því fer fjarri. Ég er fyrst og fremst mannlegur og þarf að takast á að við eigin galla á hverjum degi með það að eilífðarmarkmiði að læra af reynslunni, draga úr göllunum og auka við kostina.

Lilja er vinur minn og það sem hefur reynst mér erfiðast við þau mál sem hafa verið til umræðu að undanförnu var að særa vini mína. Ég skil því vel reiði Lilju.

Ég hef verið kallaður fleiri ljótum nöfnum en ég hef tölu á. Ég minnist þess hins vegar ekki að hafa áður verið kallaður ofbeldismaður. Ekkert sem um mig hefur verið sagt í pólitík hefur sært mig eins mikið.

Mér þótti líka leitt að sjá Lilju halda því fram að ég hefði ekki haft samband við hana. Ég sendi henni skeyti með afsökunarbeiðni til að reyna að koma á samskiptum. Þegar ekki barst svar við því bað ég aðra manneskju að láta hana vita hvernig mér liði vegna þess sem gerst hefði og að mig langaði að hitta hana. Hún afþakkaði það boð að sinni.

Ég var vitaskuld miður mín yfir þessu öllu og vildi tala við Lilju um það beint, enda var mitt að gera það. Auk þess að ítreka afsökunarbeiðni hefði ég viljað segja Lilju betur frá heildarmynd samræðnanna þetta kvöld. Því miður hafa bútar verið klipptir úr upptökunum á þann hátt að heildarmynd og samhengi riðlast. Það á meðal annars við um þann þátt sem snýr að Lilju.

Áður var ég búinn að hafa mörg orð um mannkosti Lilju og kalla hana frábæra eins og alltaf þegar ég tala um hana. Þau orð hafa hins vegar ekki verið birt. Fram hafði farið löng umræða um Framsóknarflokkinn og að mennirnir sem stjórnuðu þeim flokki létu Lilju ekki njóta sannmælis, þeir létu hana draga vagninn í kosningabaráttunni en virtu hana ekki sem skyldi. Allir eru meðvitaðir um hversu mikið álit ég hef á Lilju enda hef ég leitast við að undanskilja hana í gagnrýni á ríkisstjórnina.

Fyrir vikið hef ég verið sagður hlífa henni um of og að ég léti hana spila með mig um leið og hún spilaði á framsóknarmennina. Í einkasamtalinu sem tekið var upp og dreift er sótt að mér fyrir að halda hlífiskildi yfir Lilju. Þar tek ég undir að henni sé ekki treystandi pólitískt. Nýlegir atburðir höfðu áhrif það. Ég nefni einnig að ég geti sjálfum mér um kennt sem vísar til þess að ég hafi með skipan hennar rétt Framsóknarflokknum líflínu.

Því miður atyrti ég ekki menn sem notuðu ljót orð í æsingi og skammast mín mikið fyrir það. Ég vona þó að einhverjir hafi skilning á því að þegar maður heyrir óþægilega eða grófa hluti eru náttúrulegu viðbrögðin oft þau að láta eins og þeir hafi ekki verið sagðir eða hlægja vandræðalega.

Það að hafa í einkasamtali sagt um annan stjórnmálamann í öðrum flokki að ekki væri hægt að treysta honum pólitískt og viðurkenna að viðkomandi hefði spilað með mig réttlætir vonandi ekki slíkan stimpil.

Með því er ég ekki að afsaka með neinum hætti þær umræður sem urðu þetta kvöld og ég get ekki lýst því hversu miður mín ég er yfir þeim og þeirri atburðarás sem hefur orðið.

Lilju Alfreðsdóttur óska ég alls hins besta hér eftir sem hingað til. Mér þykir mjög vænt um hana og ber mikla virðingu fyrir henni sem manneskju og stjórnmálamanni.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Í gær

Dagfari: Fækkum ráðherrum, stofnunum og aðstoðarmönnum – aðhaldið verður að koma ofan frá

Dagfari: Fækkum ráðherrum, stofnunum og aðstoðarmönnum – aðhaldið verður að koma ofan frá
Eyjan
Í gær

Segir Sjálfstæðisflokkinn slá ryki í augun á millistéttarfólki – Í raun standi til að lækka skatta á hina ríku

Segir Sjálfstæðisflokkinn slá ryki í augun á millistéttarfólki – Í raun standi til að lækka skatta á hina ríku
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Ágúst Borgþór skrifar: Er hægt að létta þessari martröð af þjóðinni?

Ágúst Borgþór skrifar: Er hægt að létta þessari martröð af þjóðinni?
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Þetta myndi Arnar Þór gera ef hann væri Donald Trump

Þetta myndi Arnar Þór gera ef hann væri Donald Trump
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Snorri vill leggja Fjölmiðlanefnd niður – „Það er bara gert grín að þessu, þetta er bara brandari“

Snorri vill leggja Fjölmiðlanefnd niður – „Það er bara gert grín að þessu, þetta er bara brandari“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Þrumuræða Ingu Sæland vekur mikla athygli – „Ég fyrirlít stjórnvöld sem ætla ekki að taka á þessu“

Þrumuræða Ingu Sæland vekur mikla athygli – „Ég fyrirlít stjórnvöld sem ætla ekki að taka á þessu“