Flokksval Samfylkingarinnar í Reykjavík fer fram 9. – 10. febrúar nk. fyrir val á framboðslista í borgarstjórnarkosningunum í vor. Framboðsfrestur rann út í kvöld og samkvæmt tilkynningu frá Samfylkingunni hafa 14 gefið kost á sér.
Þau eru:
Nafn | titill |
sæti |
Skúli Helgason | borgarfulltrúi |
3 |
Teitur Atlason | fulltrúi á Neytendastofu |
7-9 |
Þorkell Heiðarsson | náttúrufræðingur |
5-7 |
Aron Leví Beck | málari og byggingarfræðingur |
3 |
Dagur B. Eggertsson | læknir og borgarstjóri |
1 |
Dóra Magnúsdóttir | varaborgarfulltrúi og leiðsögumaður |
4 |
Ellen Calmon | fyrrverandi formaður ÖBÍ |
5 |
Guðrún Ögmundsdóttir | tengiliður vistheimilia, fyrrv. alþingismaður |
5-7 |
Heiða Björg Hilmisdóttir | borgarfulltrúi |
2 |
Hjálmar Sveinsson | borgarfulltrúi |
3 |
Kristín Soffía Jónsdóttir | borgarfulltrúi |
2 |
Magnús Már Guðmundsson | formaður borgarstjórnarflokks Samfylkingarinnar |
4 |
Sabine Leskopf | varaborgarfulltrúi |
3-4 |
Sigríður Arndís Jóhannsdóttir | verkefnastjóri |
4-6 |
Kosningarétt hafa allir skráðir félagar í Samfylkingunni í Reykjavík með lögheimili í sveitarfélaginu sem náð hafa 16 ára aldri á valdag. Kjörskrá lokar 1. febrúar 2018 kl. 19.