Þingflokkur Miðflokksins hefur lagt fram á Alþingi þingsályktunartillögu um faglega staðarvalsgreiningu fyrir nýjan Landspítala.
Fyrsti flutningsmaður tillögunnar er Anna Kolbrún Árnadóttir og gerir tillagan ráð fyrir því að heilbrigðisráðherra verði falið að að framkvæma óháða, faglega staðarvalsgreiningu fyrir nýtt þjóðarsjúkrahús. Í tillögunni segir ennfremur að ráðherra skuli leita ráðgjafar hjá erlendum aðilum sem og innlendum fagaðilum sem verði falið að gera úttekt á mögulegri staðsetningu, m.a. með tilliti til fjárhags-, gæða-, samgöngu-, umferðar- og öryggismála. Gert er ráð fyrir að niðurstöður greiningarinnar verði birtar með aðgengilegum hætti og að ráðherra flytji Alþingi skýrslu um niðurstöðurnar eigi síðar en í maí 2018.
Bygging nýs Landspítala á nýjum stað var eitt af helstu áhersluatriðum í kosningastefnu Miðflokksins fyrir Alþingiskosningarnar 2017, enda hafa fjölbreytt rök fagaðila sýnt fram á að það væru afdrifarík mistök að halda áfram með úrelt áform um byggingu spítala við Hringbraut. Það er því augljós og skynsamleg nálgun að fram fari á vegum ríkisins óháð og fagleg staðarvalsgreining sem gefi skýra mynd af kostunum sem í boði eru til byggingar nýs þjóðarsjúkrahúss.
Í greinargerð þingsályktunartillögunnar segir:
Á árunum 2001–2008 skrifuðu íslenskri og erlendir sérfræðingar fjölmargar álitsgerðir og í flestöllum var komist að þeirri niðurstöðu að best væri að byggja nýtt þjóðarsjúkrahús frá grunni á nýjum stað. Sérfræðingarnir sem sömdu álitin töldu hins vegar að ef ekki væri hægt að byggja nýtt sjúkrahús frá grunni á nýjum stað væri best að byggja við sjúkrahúsið í Fossvogi eða gamla Landspítalann við Hringbraut. Niðurstaðan, að byggja við Landspítalann við Hringbraut, var byggð á aðalskipulagi Reykjavíkur 2001–2024 en allar forsendur skipulagsins eru brostnar, ekkert þeirra umferðar- og skipulagsúrræða sem þar er reiknað með er í gildi í núna. Núverandi staðarval virðist því byggjast á úreltu skipulagi.
Í skýrslu, sem unnin var af Háskólanum á Bifröst og Rannsóknarstofnun atvinnulífsins fyrir Samtök atvinnulífsins í nóvember 2015, kom m.a. fram að Hringbraut hentaði ekki sem framtíðarstaðsetning þjóðarsjúkrahússins og tekið var til að fjárhagslegur ávinningur annarrar staðsetningar væri töluverður.
Í úttekt samtakanna um betri spítala á betri stað, sem gerð var í júní 2015, sagði að kostnaður við byggingu og reksturs nýs þjóðarsjúkrahúss væri mismunandi eftir staðsetningum. Samtökin báru saman þrjá staði. Í fyrsta lagi viðbyggingar við gamlar byggingar á Hringbraut, viðbyggingu við spítalann í Fossvogi og byggingu nýs spítala frá grunni á öðrum stað, sem væri nýr staður nær búsetumiðju höfuðborgarsvæðisins og við meginumferðaræðar. KPMG fór yfir útreikningana, skoðaði forsendur og staðfesti útreikningana miðað við gefnar forsendur. Samanburðurinn sýndi að hagkvæmara væri að byggja í Fossvogi en við Hringbraut og enn hagkvæmara væri að reisa nýtt þjóðarsjúkrahús frá grunni á nýjum stað.
Meginmarkmið þessarar tillögu er að gerð verði óháð, fagleg staðarvalsgreining fyrir nýja þjóðarsjúkrahúsið. Gera þarf faglega staðarvalsgreiningu til að sjá hvar hagkvæmast og best væri að byggja nýtt þjóðarsjúkrahús. Til þess þarf óháða fagmenn svo sem skipulagsfræðinga, sjúkraflutningamenn, þyrluflugmenn, verkfræðinga, viðskiptafræðinga, umferðarfræðinga og heilbrigðisstarfsfólk. Fagfólki yrði falið að gera úttekt á mögulegum staðsetningum út frá fjárhags-, gæða-, samgöngu-, umferðar- og öryggismálum. Niðurstöðurnar þyrfti að birta með aðgengilegum hætti fyrir allan almenning og stjórnmálamenn þannig að glögglega megi átta sig á hvernig hver staður kemur út á helstu mælikvörðum sem máli skipta.